<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T19:24:11" skst="BHar" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 19:25:21 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T19:24:11">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="5">
      <ns:málsheiti>sveitarstjórnarlög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ræðuna og fyrir
    að koma með svona stórt og mikilvægt mál inn í tíma. Það er mikilvægt
    fyrir þingið að það hafi góðan tíma til að vinna málið. Ég ætla að taka
    undir með hv. þm. Sigríði Á. Andersen sem talaði hér á undan. Ég hef lengi
    haft þá skoðun að það ætti að breyta þessu til baka í
    sveitarstjórnarlögunum. Ég legg bara til að við sammælumst um
    breytingartillögu á þessu frumvarpi ef nefndinni dettur það ekki í hug
    sjálfri. En mig langar að spyrja hæstv. ráðherra út í 143. gr., um mat á
    fjárhagslegum áhrifum fyrir sveitarfélög, þ.e. þá skyldu að öllum
    stjórnarfrumvörpum, stjórnvaldsfyrirmælum og stefnumarkandi ákvörðunum af
    hálfu ríkisins þurfi að fylgja fjárhagslegt áhrifamat á sveitarfélögin.
    Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Hvað er í þessari 143. gr. umfram
    það sem er í, ég held að þessi grein sé nr. 129 í núverandi
    sveitarstjórnarlögum, sem tryggir sveitarfélögunum að raunverulegt mat
    fari fram á öllum þeim kostnaði sem á þau er lagður með ákvörðunum héðan
    frá Alþingi?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>