<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-15T19:25:27" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 19:27:00 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T19:25:27">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="5">
      <ns:málsheiti>sveitarstjórnarlög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að ráðherra
    beri að grípa til ráðstafana ef í ljós kemur að lagasetning,
    stjórnvaldsfyrirmæli eða stefnumarkandi ákvörðun stjórnvalda muni hafa
    fjárhagsleg áhrif á sveitarfélög og tryggja að mat fari fram. Í núgildandi
    lögum, 129. gr. sveitarstjórnarlaga, segir að ráðherra beri ábyrgð á því
    að fjárhagslegt mat fari fram en ekkert er kveðið á um í ákvæðinu um
    afleiðingar þess að matið fari ekki fram. Ýmsar leiðir gætu komið til
    greina til að árétta skyldu ráðherra hér, en sú leið sem varð fyrir valinu
    hjá starfshópnum var að ganga lengra en núgildandi ákvæði og leggja til að
    mælt yrði fyrir um að ráðherra beri að grípa til ráðstafana ef ekkert mat
    hefur farið fram, að grípa til ráðstafana en ekki að bera ábyrgð. Það er
    munurinn. Í því felst að ráðherra ber stjórnsýslulega ábyrgð að eiga
    frumkvæði að ráðstöfun til að leiðrétta þau mistök ef fjárhagslegt mat
    hefur ekki farið fram. Dæmi um það sem ráðherrann gæti gripið til myndi
    t.d. snúa að breytingu á fjármögnun eða breytingu á þjónustukröfum. Þar
    sem atvik mála geta verið afar mismunandi er lagt til að ákvæðið verði
    opið vegna eðlis slíkra ráðstafana, en ýmislegt annað getur komið til
    greina en breytingar á fjármögnun eða breyting á þjónustukröfum, t.d. að
    falla alfarið frá því að fela sveitarfélagi verkefni. Það er líka
    möguleiki, þriðji möguleikinn.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>