<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T19:27:08" skst="BHar" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 19:28:55 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T19:27:08">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="5">
      <ns:málsheiti>sveitarstjórnarlög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég hef
    mikinn áhuga á þessari grein og ég held að það sé mjög mikilvægt að hún
    verði að lögum og að hún fái raunverulega framkvæmd. Þá langar mig að
    nefna það að hér rétt á undan var hæstv. mennta- og barnamálaráðherra að
    mæla fyrir þingsályktunartillögu um framkvæmdaáætlun um samþættingu
    þjónustu í þágu farsældar barna til ársins 2030. Þar hefur svona mat ekki
    farið fram. Eins og fram kom í andsvörum mínum við hæstv. ráðherra þá er
    þar verið að taka fjármagn í rauninni frá sveitarfélögum sem hafði verið
    áætlað í það verkefni á sínum tíma. Og hér eru alls konar aðgerðir og
    sveitarfélögin eru nefnd en það er ekki slíkt fjárhagslegt mat þannig að
    ég hvet hæstv. ráðherra til að skoða það og ég hvet líka hv. þingnefnd til
    að fara sérstaklega yfir þetta.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En eins og segir í síðustu málsgrein 143. gr. að komi í ljós að
    ekki hafi farið fram mat á fjárhagslegum áhrifum samkvæmt þessari grein og
    ljóst sé að löggjöf, stjórnvaldsfyrirmæli eða stefnumarkandi ákvörðun
    ríkisins muni hafa fjárhagsleg áhrif á sveitarfélögin á ráðherra að eiga
    frumkvæði að viðeigandi ráðstöfunum. Nú erum við til að mynda með
    barnaverndina, við erum með farsældina og hér fyrir tveimur þingum síðan
    var mikið rætt um hækkun veiðigjalda. Á meðal raka þeirrar sem hér stendur
    var að það vantaði fjárhagslegt mat á sveitarfélögin. Hér lágu fyrir
    umsagnir frá nánast öllum sveitarfélögum á landinu sem höfðu áhyggjur af
    þessu. Hvernig sér hæstv. ráðherra fyrir sér að hann geti framfylgt
    þessari grein eins og hún liggur fyrir í þessu frumvarpi út frá þeim lögum
    sem hér hafa farið í gegn og eru að öllum líkindum að hafa töluverð áhrif
    á fjárhag sveitarfélaga?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>