<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-15T19:29:00" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 19:30:15 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T19:29:00">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="5">
      <ns:málsheiti>sveitarstjórnarlög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sitt seinna
    andsvar. Hafa verður í huga að niðurstaða áhrifamats um að lagasetning
    feli í sér ákveðinn aukinn kostnað fyrir sveitarfélög hefur ekki
    sjálfkrafa í för með sér að sveitarfélögum verði bættur sá kostnaður upp á
    krónu enda hafa sveitarfélögin sjálfstæða tekjustofna. Varðandi þetta með
    niðurskurðinn núna í fjárlögunum þá var um tímabundið framlag að ræða sem
    fellur niður. Varðandi það hvar mörkin eru, eins og með veiðigjaldið, er
    spurning hvort það eigi við í hvert einasta skipti. Ég myndi telja að
    þetta þyrfti að vera málefni sem snýr beinna að sveitarfélögum. Það er mín
    skoðun. En það er mjög erfitt að finna hvar mörkin eru. Öll lög og reglur
    geta haft áhrif á fjárhag sveitarfélaganna en það hljóta að vera einhver
    mörk á því hvar þetta mat eigi að vera og hvar ekki. Það verður reynslan
    að sýna varðandi framkvæmd laganna. En hér er klárlega verið að styrkja
    þetta og ráðherra ber klárlega ábyrgð á að grípa til ráðstafana ef ekkert
    mat hefur farið fram. En þá er spurningin og mat ráðherrans hvenær eigi að
    grípa til ráðstafana og hvenær ekki.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>