<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T19:30:26" skst="ÓA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 19:31:50 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T19:30:26">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="5">
      <ns:málsheiti>sveitarstjórnarlög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu
    hennar hér og gott erindi. Ég vil jafnframt lýsa því yfir að hann er
    einstaklega óheppinn að vera í þeirri stöðu að koma strax á eftir barna-
    og menntamálaráðherra þar sem hún var m.a. að ræða barnavernd og þar bar á
    góma samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um börn með fjölþættan vanda.
    Ráðherra fór reyndar mikinn í umræðu um það og ef ég skildi hana rétt þá
    bar hún því við að menn gætu hreinlega ekki lesið hjá sveitarfélögunum. En
    ég hlýt að spyrja miðað við yfirlýsingar ráðherrans um 143. gr. því að það
    er hérna konkret dæmi þar sem verið er að breyta þjónustukröfum og það
    gerist með reglugerð nr. 700/26 þar sem ráðherra skilgreinir í burtu
    stóran hluta þess hóps sem átti að njóta þessa samkomulags milli ríkis og
    sveitarfélaga um börn með fjölþættan vanda. Mér þætti gaman að heyra hvort
    ráðherra sjái fyrir sér að þetta verði eitt af þeim fyrstu málum sem kæmu
    þá á hans borð, á borð þeirra sem munu þurfa að fjalla um þessi
    mál.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>