<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-15T19:31:53" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 19:33:23 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T19:31:53">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="5">
      <ns:málsheiti>sveitarstjórnarlög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og
    spurninguna. Varðandi fjárhagslega matið þá er það fyrst og fremst hugsað
    til að undirbúa sveitarfélögin til að geta tekið við verkefnum, varðandi
    verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, það er hugsað út frá því,
    fjárhagslega matið lýtur að því, fyrst og fremst. Einnig má rifja upp þá 3
    milljarða sem ríkið ákvað að verja í þjónustu gagnvart börnum með þriðja
    stigs fjölþættan vanda og ríkisstjórnin er að setja 800 milljónir til
    viðbótar í þennan málaflokk. Ef í ljós kemur að lagasetning hefur mikil
    áhrif á fjárhag sveitarfélaga er ljóst að það þarf að fara fram samtal
    milli ríkis og sveitarfélaga um tekjustofna sveitarfélaga á víðtækari
    grunni, þ.e. skoða þetta víðtækar og það lýtur ekki að — við höfum verið
    að flytja verkefni til sveitarfélaganna og það er bara spurningin: Hafa
    sveitarfélögin burði til að reka og fara með málefni fatlaðs fólks,
    barnavernd? Í lögum um barnavernd er 6.000 manna íbúalágmark. Við erum
    ekki með lágmarksfjölda íbúa þar, 6.000.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Sama er líka málefni fatlaðs fólks. Þar grúppa sveitarfélögin sig
    saman þannig að það verður að horfa líka til á breiðum grundvelli, bæði
    getu sveitarfélaganna og líka það varðandi tekjustofna sveitarfélaga sem
    er þá sérstakt samstarfsverkefni milli ríkis og sveitarfélaga á víðtækari
    grunni. Ég tel ekki að ég þurfi að hafa þetta lengra að þessu
    sinni.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>