<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T19:33:29" skst="ÓA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 19:34:43 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T19:33:29">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="5">
      <ns:málsheiti>sveitarstjórnarlög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Nú veit ég að ég er að gera ráðherranum óleik því
    þetta er auðvitað ekki hans málaflokkur en ég bendi honum á það að í 2.
    gr. í samkomulaginu stendur nú að einnig geti fallið undir skilgreininguna
    börn sem þurfa mikla og viðvarandi þriðja stigs þjónustu á vegum
    barnaverndarkerfisins vegna vanrækslu og/eða ofbeldis. Það hefur ekkert
    með fötlun að gera. En mig langar í mínu seinna andsvari að heyra
    sérstaklega ofan í ráðherra því ég veit að ráðherrann er mjög áhugasamur
    um sameiningu sveitarfélaga og ég held að hann hafi nokkuð til síns máls
    þegar hann nefnir það að stærri sveitarfélögin séu öflugri heldur en þau
    minni og líklegri til að geta sinnt þeim flóknu og erfiðu verkefnum sem
    koma á borð sveitarfélaganna og eru jafnan á borðum sveitarfélaga. Mig
    langar til að heyra ofan í ráðherra með það hvort hann telji að þær
    breytingar sem verið er að gera núna á þessu frumvarpi og væntanlega munu
    koma til framkvæmda séu líklegar til þess að stuðla að frekari sameiningu
    og ef það er, hvaða væntingar ráðherrann hefur um sameiningar í þeim
    efnum. Sjáum við sveitarfélög hverfa sem t.d. telja fáeina tugi eða
    jafnvel fáein hundruð?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>