<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-15T19:34:48" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 19:37:07 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T19:34:48">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="5">
      <ns:málsheiti>sveitarstjórnarlög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið
    og þetta er náttúrlega grundvallarspurning. Ég hef ekki enn þá hitt neinn
    sem er ekki sammála mér í því að 50 manna sveitarfélag sé of fámennt
    sveitarfélag. 300 manna sveitarfélag er það líka. Hvar mörkin liggja
    varðandi sveitarfélög — 1.000 manna lágmark var reynt að leggja fram í
    þinginu. Það náði ekki fram að ganga. Ég tel að það ætti að vera jafnvel
    2.000–3.000. Það segir í stjórnarskránni að sveitarfélögin fari með mál
    sín sjálf samkvæmt lögum. Þetta liggur allt hjá Alþingi Íslendinga. Við
    búum í þingræðisríki og þingið verður að hafa manndóm í sér til að taka
    ákvörðun um það hver lágmarksíbúafjöldi í sveitarfélagi á að vera. Það
    hefur ekki gerst. Það hefur ekki raungerst. Það er grundvallaratriði. Ég
    tel að Alþingi þurfi að svara þeirri spurningu, og ég vona að
    þingmannanefndin geri það, hver lágmarksíbúafjöldinn á að vera. Ég reyndi
    með 250 og kom með frumvarp um það. Það var ekki pólitískur vilji til
    þess. Þetta snýst um pólitískan vilja.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég held að við séum komin að ákveðnum endapunkti núna. Það er
    vissulega hvati til sameiningar í lögum um jöfnunarsjóð þegar þau lög
    verða innleidd í áföngum og þegar verður búið að innleiða þau alveg. Það
    er ákveðinn hvati til sameiningar, ekki stór, varðandi byggðasamlögin
    t.d., verið er að færa þjónustu til nærsamfélagsins og hún er síðan færð
    frá sveitarstjórnarfulltrúum til byggðasamlags. Það er ekki nærþjónusta,
    svo það liggi fyrir. <ns:bjalla/> Ég tel mikilvægt að við tökum á þessu og
    stuðlum að frekari sameiningu sveitarfélaga, og svo verður vonandi hvati
    til sameiningar í lögum um orkusveitarfélög líka, sem er frumvarp sem mun
    koma í haust, en ég tel að við séum komin á ákveðna stöðnun. <ns:bjalla/>
    Þetta verður að gerast að frumkvæði sveitarstjórnanna núna því þingið er
    ekki að fara að taka á þessu máli. Ég vona að þingið geri það en ég er
    ekki að sjá það fara að gerast. Sveitarstjórnirnar sjálfar verða að finna
    þetta hjá sér. Það eru 455 sveitarstjórnarfulltrúar í landinu og þau sjá
    það dálítið sjálf. Sveitarstjórnarstigið er að stórum hluta mjög veikt.
    Það eru veik sveitarfélög sem eru 50 manns, veik sveitarfélög sem eru 300
    íbúar o.s.frv. Ég held að það sé hægt að spara alveg gríðarlega mikið í
    meðferð opinbers fjár ef við stuðlum að frekari sameiningu sveitarfélaga
    og þetta myndi efla landsbyggðina því þar eru þessi litlu
    sveitarfélög.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>