<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T19:37:17" skst="ÞórP" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 19:39:17 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T19:37:17">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="5">
      <ns:málsheiti>sveitarstjórnarlög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir
    framsögu á sínu frumvarpi. Þetta er efnismikið frumvarp og góð framsaga
    hjá hæstv. ráðherra. Hæstv. ráðherra kallaði eftir því áðan eða sagði hér
    í ræðustól Alþingis að hann hefði nú ekki hitt þann þingmann sem væri
    honum ósammála þegar kæmi að íbúalágmarki eða sameiningu sveitarfélaga. Þá
    upplýsist hér með að ég er algjörlega ósammála ráðherra hvað þetta varðar
    og það á ekki að koma neinum á óvart.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég velti því fyrir mér þegar það er fullyrt hér í ræðustól
    Alþingis að þetta sveitarfélag eða hitt sé veikt sveitarfélag. Það má vel
    vera að það geti ekki veitt sömu þjónustu, en er það baggi á samfélaginu?
    Nei. Það er nefnilega lykill málsins. Eru þessi sveitarfélög að þvælast
    fyrir öðrum? Það held ég ekki. Nú þekkjum við það ágætlega, þingmenn í
    Norðausturkjördæmi, að það eru fámenn sveitarfélög vítt og breitt um
    kjördæmið, Fljótsdalshreppur, Tjörneshreppur, Grýtubakkahreppur,
    Svalbarðsstrandarhreppur, svo talið sé svona áfram. Ég hef ekki orðið var
    við að þessi samfélög séu baggi á öðrum. Geta þau boðið upp á sömu
    þjónustu og önnur? Ef svo er ekki, þá kaupa þau hana af
    nágrannasveitarfélagi. Og er það baggi á því sveitarfélagi? Það þurfa
    aðrir að svara fyrir. Ég tel mjög mikilvægt í þessu samhengi, hæstv. og
    virðulegur forseti, að það verði gengið hér rólega um og borin virðing
    fyrir því hvað íbúar hinna dreifðu byggða og minni sveitarfélaga vilja
    gera í náinni framtíð, hvert þeir vilja stefna o.s.frv. Það er ekki okkar
    að ákveða það.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>