<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-15T19:39:24" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 19:41:15 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T19:39:24">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="5">
      <ns:málsheiti>sveitarstjórnarlög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það er ekki Alþingis Íslendinga að ákveða að
    fara með sveitarstjórnarstigið. Ég er að mæla hér fyrir frumvarpi til laga
    um sveitarstjórnir, sveitarstjórnarlaga. Það er augljóst mál og samkvæmt
    stjórnarskránni er það löggjafinn, Alþingi Íslendinga, sem ákveður
    lagareglur varðandi sveitarfélögin. Það getur líka ákveðið lágmarksfjölda
    og sameinað þau með lögum. Það er alveg klárt mál hérna í þingræðisríkinu
    Íslandi að völdin á Íslandi liggja á Alþingi Íslendinga og líka varðandi
    sveitarstjórnarmálin. Talandi um að lítil sveitarfélög séu baggi á
    samfélaginu eða fyrir öðrum samfélögum: Ef það fæðist fatlaður
    einstaklingur í 50 manna sveitarfélagi, mun þetta 50 manna sveitarfélag
    geta staðið fyrir NPA-samningi við það sveitarfélag kannski upp á 100
    milljónir á ári? Nei, það mun ekki geta gert það. Ég talaði við
    sveitarstjórnarfulltrúa sem kemur úr 100 manna sveitarfélagi. Hann sagði
    einfaldlega við mig: „Ef það fæðist fatlað barn í þessum hreppi hjá okkur,
    þá fer sveitarfélagið á núll einni á hausinn sama dag. Það mun aldrei geta
    ráðið við það.“ Mun sveitarfélagið geta séð um grunnskóla líka, 50 manna
    sveitarfélag? Nei, það mun ekki geta gert það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þingmenn Íslands, 63 manns, eru fjölmennari en minnstu
    sveitarfélögin í landinu. Þetta er spurning um það að ríkisvaldið og
    Alþingi Íslendinga eru búin að færa verkefni til sveitarfélaga sem hafa
    ekki burði til að sinna þeim sjálf. Til hvers erum við að kjósa
    sveitarstjórnarfulltrúa? Jú, til að sjá um þessa nærþjónustu, ekki til að
    senda það til næsta sveitarfélags til að sjá um þessa þjónustu eða láta
    það allt inn í byggðasamlög þar sem stjórnir byggðasamlaganna ráða öllu.
    Þá getum við bara haft eina sorphirðu yfir landið, eina stofnun sem sér um
    málefni fatlaðs fólks yfir landið. <ns:bjalla/> Hvar er lýðræðisleg skylda
    sveitarstjórnarfulltrúa til að sjá um rekstur á þeim málefnum sem
    löggjafinn felur þeim?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>