<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T19:41:21" skst="ÞórP" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 19:43:02 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T19:41:21">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="5">
      <ns:málsheiti>sveitarstjórnarlög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir
    andsvarið og ég vil bara upplýsa það hér enn og aftur að það á að vera
    undir þeim komið sem í þessum samfélögum búa hvort þeir geti ráðið sér
    sjálfir eða ekki. Við þekkjum það alveg að sameiningar hafa farið fram
    vítt og breitt og við þekkjum það mjög vel í Norðausturkjördæmi þar sem
    sameiningar hafa átt sér stað. Meira að segja hafa verið boðnar ákveðnar
    gulrætur sem áttu að fylgja með. Það voru samgöngubætur og annað og við
    þekkjum það ágætlega að það hafa nú ekki alltaf verið efndir á þeim
    gulrótum sem þar voru bornar á borð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En við skulum alveg hafa það á hreinu, virðulegi forseti, að hér
    er ekki bara verið að tala um 50 manna samfélög. Það er verið að tala um
    200, 250, 300. Hæstv. ráðherra sagði hér: „Ja, hugsanlega þyrfti þetta
    bara að vera 6.000.“ <ns:frammíkall skst="Innvrh.">Nei … sem gert er ráð
    fyrir.</ns:frammíkall> Já. Þá getum við horft á það þannig, t.d. eins og
    sveitarfélagið Múlaþing, Fjarðabyggð, sem telur rétt rúmlega 5.000 íbúa
    eða 4.000. Þannig að það er mjög vandmeðfarið í dreifbýlu landi hvar við
    drögum mörkin. Og það á að vera íbúanna hverju sinni að reyna að uppfylla
    þær skyldur sem við leggjum á herðar þeim með þeim lögum sem við setjum
    hér, að sjálfsögðu. Það er enginn að mæla á móti því. En viljinn á að koma
    frá íbúunum sjálfum í hinum dreifðu byggðum.</ns:mgr>

    <!--Heyri ekki alveg hvað hann segir í framíkallinu // eyb-->
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>