<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-15T19:43:08" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 19:45:08 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T19:43:08">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="5">
      <ns:málsheiti>sveitarstjórnarlög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Hefur Alþingi Íslendinga verið að gera
    eitthvað til að krefjast þess að sveitarfélög sameinist? Nei, það hefur
    ekki gert neitt til þess. Þetta hefur allt komið frá íbúunum sjálfum. Það
    er ekkert í þessu frumvarpi hér sem er að knýja sveitarfélög til að
    sameinast, ekki neitt. Það er ekkert um lágmarksfjölda íbúa sveitarfélaga.
    Það sem er hins vegar í barnaverndarlögum, og barnavernd er hjá
    sveitarfélögunum, er krafa um að barnaverndarsvæðin séu 6.000 íbúar.
    Ríkisvaldið kastaði raunverulega inn handklæðinu í lögum um málefni
    fatlaðs fólks. Ríkisvaldið er raunverulega farið að horfa á sveitarfélögin
    sem hóp sveitarfélaga, þau taka að sér málefni fatlaðs fólks, ekki einstök
    sveitarfélög, ekki sveitarfélög sem eru með 500 íbúa eða 600 íbúa. Það mun
    aldrei sjálft sjá um barnaverndarmálin. Það mun aldrei sjálft sjá um mörg
    verkefni sem þeim er falið sjálfum.</ns:mgr>

    <!--Hlusta 19:43:33 Á undan „Ríkisvaldið kastaði…“ segir hann: „Það er hætta/hætt við…“ sem ég heyri ekki hvort á að vera prjónað við, þá t.d.: „Það er hætt við því að ríkisvaldið…“ eða hvort hann hætti við og ætli bara að tala um ríkisvaldið og handklæðið //glg-->

    <ns:mgr>Annað mikilvægt atriði sem ég kom inn á í ræðu minni er að við
    erum að kjósa sveitarstjórnarfulltrúa. Til hvers? Til að sjá um þau
    verkefni sem löggjafinn er búinn að fela þeim. Það er þess vegna sem við
    kjósum sveitarstjórnarfulltrúa. En það er þannig að sveitarstjórnirnar eru
    það veikar sumar að þær láta annað sveitarfélag sjá um þjónustuna. Það er
    ekki lýðræðislegt. Það er ekki heldur lýðræðislegt að setja þetta allt í
    byggðasamlag. Það er ekki lýðræðislegt. Til hvers erum við að kjósa 455
    sveitarstjórnarfulltrúa í landinu ef ekki til að sjá um lögbundna skyldu
    sem er í lögum? Til þess erum við að þessu. Það er hlutverk
    sveitarstjórnarfulltrúanna, lýðræðislega kjörinna, að sjá um þau hlutverk,
    alveg eins og það er hlutverk okkar hér á Alþingi að setja samfélaginu lög
    og reglur. Þannig er þetta. <ns:bjalla/> Og að við séum eitthvað að krefja
    þau um sameiningar. Þetta hefur verið þannig enda sjáum við ástandið núna.
    Við erum með 150.000 manna sveitarfélag sem er Reykjavík, og alveg niður í
    50 manns og allt þar á milli. Ríkisvaldið hefur ekki verið að taka á
    þessu, Alþingi hefur ekki verið að taka á þessu. Við munum sennilega búa
    við þetta áfram. Ég veit það ekki. Ekki nema það komi frá
    þingmannanefndinni sem ég vonast til að svari þessum spurningum sem við
    munum leggja fyrir hana. <ns:bjalla/></ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="BergÓ"> Forseti er auðvitað fullviss þess að
    bæði þingmenn og hæstv. ráðherrar séu meðvitaðir um að þegar fjórir óska
    eftir andsvari er ræðutíminn ein mínúta í fyrri og seinni umferð. Það var
    rúmt á því núna.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>