<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T19:45:35" skst="BHar" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 19:54:24 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T19:45:35">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="5">
      <ns:málsheiti>sveitarstjórnarlög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég ætla ekki að ræða um sameiningar sveitarfélaga. Ég
    er nefnilega hlynnt því að sveitarfélög séu af ákveðinni stærð og hafi
    burði til að veita þá þjónustu sem á þau er lögð. En það fór fram
    áhugavert samtal hér áðan. Mig langar í þessari ræðu minni að halda áfram
    með þá umræðu sem ég átti við hæstv. ráðherra í andsvörum áðan. Hæstv.
    ráðherra kom hér upp í seinna andsvari og talaði eitthvað á þá leið að
    þetta fjárhagslega mat sem gert væri ráð fyrir væri bara til að undirbúa
    sveitarfélögin til að taka við verkefnum. Ég held að hæstv. ráðherra hafi
    orðað það með þeim hætti og ég vona að hann finni annars tækifæri til að
    leiðrétta það. Það er auðvitað ekki þannig að löggjafinn geti hér sett
    auknar byrðar með breytingum á lögum á hitt stjórnsýslustigið,
    sveitarfélögin, öðruvísi en að fundin sé leið til að fjármagna þá
    þjónustu. Ég held að skilningur allra sveitarstjórnarmanna hafi alltaf
    verið á þá leið að 129. gr. núverandi sveitarstjórnarlaga hafi átt að
    tryggja að öll ráðuneyti, ekki bara ráðuneyti hæstv. ráðherra, meti
    kostnaðaráhrif sinna frumvarpa á sveitarfélögin og finni leiðir til að
    fjármagna þau. 143. gr. í þessu frumvarpi er enn skýrari að mínu viti og
    gefur sveitarfélögum ákveðin tækifæri til þess að hægt sé að bregðast við
    eftir á ef þetta mat hefur ekki átt sér stað. Virðulegur forseti, ég sé
    enga agnúa á orðalagi þeirrar greinar eins og hún liggur fyrir í
    frumvarpsdrögunum en skilningur okkar á því hvað sá texti þýðir verður að
    vera sameiginlegur. Mér fannst í seinna andsvari eins og hæstv. ráðherra
    væri einhvern veginn að koma sér undan þeirri ábyrgð sem skrifuð er inn í
    þessa grein laganna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Við erum með gott dæmi fyrir framan okkur
    akkúrat núna. Það var verið að mæla fyrir barnaverndinni og það var verið
    að mæla fyrir þingsályktunartillögu um farsældina eða framkvæmd út af
    farsældarlögunum og það er strax kominn upp ágreiningur um nákvæmlega
    þessa þætti sem þarna er verið að taka á. Bara fyrir örfáum mánuðum
    skrifaði þessi ríkisstjórn undir samkomulag við sveitarfélögin. Þetta átti
    að vera tímamótasamkomulag, það féllu stór orð hjá hæstv. forsætisráðherra
    og fleiri ráðherrum þessarar ríkisstjórnar. Nú væri loksins búið að leysa
    þetta aldagamla vandamál er sneri að fjármögnun milli ríkis og
    sveitarfélaga. Það eru liðnir nokkrir mánuðir síðan, örfáir mánuðir, og
    við erum að tala um viðkvæmasta hópinn í þessu samfélagi sem eru börn með
    fjölþættan vanda. Það eru allir sammála því að það þurfi að þjónusta þessi
    börn og að það þurfi að finna viðeigandi úrræði. En hvað gerist? Ráðherra
    gerir reglugerð sem skilgreinir sig í rauninni frá verkefninu sem
    ríkisstjórnin skrifaði undir við sveitarfélögin um að þau ætluðu að taka
    yfir. Er nema furða, virðulegur forseti, að sveitarstjórnarmönnum sé heitt
    í hamsi yfir þessu. Þegar ég og fleiri sem erum í stjórnarandstöðu fórum
    að spyrja um þetta, fórum að velta því fyrir okkur hvort þetta fjármagn
    væri í fjármálaáætlun með fjárlögum, hvert var þá svarið frá
    stjórnarliðum? Svarið var: Þetta verður klárað. Því var lofað hér í þessu
    púlti að það myndi ekki skorta fjármuni í þessi verkefni en annað virðist
    vera að koma á daginn.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það kann að vera ósanngjarnt að einhverju
    leyti að ég sé að hækka róminn yfir hæstv. innviðaráðherra sem er hér að
    leggja fram býsna góðan og ítarlegan lagabálk og mikilvæga endurnýjun á
    sveitarstjórnarlögunum. En það er svo mikið grundvallaratriði í allri
    vinnu okkar hér í þessum sal að við vinnum með hinu stjórnsýslustiginu,
    sveitarstjórnunum í þessu landi. Eins og hæstv. ráðherra kom ágætlega inn
    á þá er verið að kjósa hér sveitarstjórnir um land allt. Það er beint
    lýðræði og við erum nýbúin að kjósa hæft fólk til að sitja í
    sveitarstjórnum þar sem við búum, treystum því fyrir að veita þessa
    nærþjónustu. En þá er lykilatriði að við sem setjum lögin gerum það í
    samstarfi við það mikilvæga stjórnsýslustig sem sveitarstjórnarstigið er
    og tryggjum að þau hafi þau tæki og tól og fjármagn til að veita þá
    þjónustu sem ætlast er til af þeim samkvæmt lögum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Út af því að hér hefur reglulega verið rætt um
    málefni fatlaðs fólks, sem er síðasta risastóra yfirfærslan sem átti sér
    stað frá ríki til sveitarfélags, þá var það þannig að það var ekkert verið
    að kasta til hendinni þegar farið var í þá yfirfærslu; það var
    kostnaðarmetið. Nefndir voru að störfum, bæði fulltrúar sveitarfélaga og
    fulltrúar ríkis, að fara yfir það hvað málaflokkurinn kostar. Það voru
    alls konar skýrslur og greiningar sem lágu fyrir. Niðurstaðan, þegar þetta
    allt saman er rýnt, er ekki endilega sú að það kostnaðarmat sem unnið
    hefur verið hafi verið rangt heldur að síðan þá hafi Alþingi Íslendinga
    breytt lögum með þeim hætti að það hafi aukið á kostnað við málaflokkinn.
    Við erum bara nýbúin að gera það, þegar við lögleiddum samning Sameinuðu
    þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks en það var eitt af stærstu málum Flokks
    fólksins sem hæstv. ráðherra skipar nú. Þá kom líka þetta ákall frá
    sveitarfélögunum: Abbababbaba, hvað þýðir þetta fyrir okkur? Hvaða kröfur
    er þessi löggilding að setja okkur og er verið að tryggja okkur fjármuni
    til að geta staðið undir þeim auknu kröfum sem hér eru settar? Ég get ekki
    sagt að það hafi verið skýr svör frá ráðherrum ríkisstjórnarinnar hvað það
    varðar en það stóð ekki á fulltrúum þessara flokka að halda því hér fram í
    ræðustól að þetta væri ekkert vandamál, peningarnir yrðu tryggðir í þessi
    verkefni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En viti menn, kæri forseti, peningarnir eru bara svolítið búnir.
    Hér er búið að leggja fram frumvarp að hallalausum fjárlögum og fagna ég
    því. Það eru reyndar bara 5 milljarðar sem eiga að vera þar eftir. Það er
    ljóst að fjárlaganefnd mun þurfa að leita leiða til að hagræða enn frekar.
    Það verður ekki gert nema í samstarfi við þessa ríkisstjórn sem verður að
    fara að huga að því hvaða áhrif þau frumvörp sem hér fara í gegn hafa á
    ríkissjóð en líka á sveitarfélögin. Nú er ég kannski komin um víðan völl.
    En fyrst og fremst snýr þetta frumvarp hér og það sem ég er að nefna hér
    að sveitarfélögunum, að þau hafi burði til að veita þessa ofboðslega
    mikilvægu þjónustu sem við erum að fela þeim. Ég er þeirrar skoðunar að
    sveitarfélögin eigi að veita þessa þjónustu því að ég held að þau séu best
    í stakk búin til að veita nærþjónustuna. En þá þurfa þau að hafa til þess
    tæki og tól. Ein af þeim tryggingum sem þeim hefur verið tryggð er 129.
    gr. Hún hefur því miður ekki alltaf gengið eftir. Ég fagna því 143. gr.
    sem liggur fyrir í þessu frumvarpi. Ég vona að hún fari þannig í gegn en
    hvet líka nefndina til að fara vel yfir textann og fullvissa okkur um að
    það sé sameiginlegur skilningur á því hvað hún raunverulega þýði. En í
    kjölfarið, virðulegur forseti og hæstv. ráðherra, þá held ég að það sé
    algerlega ljóst að það þarf að greina þau frumvörp sem hér hafa verið lögð
    fram og hér hafa fengið afgreiðslu og verða lögð fram á þessu þingi, hvort
    þau standist þessa grein sveitarstjórnarlaganna. Því miður, virðulegur
    forseti, óttast ég að svo sé ekki.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>