<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-15T19:54:34" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 19:57:05 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T19:54:34">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="5">
      <ns:málsheiti>sveitarstjórnarlög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Varðandi
    129. gr. í núgildandi lögum og nú 143. gr. í frumvarpinu, um mat á
    fjárhagslegum áhrifum, þá tel ég ekki, og ég held að ekki hafi verið gert
    ráð fyrir því að ákvæðið, 143. gr. frumvarpsins, eigi við um fjárlög t.d.
    Ég get ekki séð að það eigi við. Það er fyrir utan mörk þessa ákvæðis, að
    áður en fjármálaráðherra mæli fyrir fjárlögum sínum hér í þessum sal þurfi
    hann að vera búinn að meta það, fara í matsferli gagnvart
    sveitarfélögunum, þegar hann er að uppfylla stjórnskipulega skyldu sína um
    að koma með fjárlög fyrir næsta ár. Ég get ekki séð að þá þurfi að fara
    fram fjárhagslegt mat. Það geta aðrir komið með önnur rök en þetta er mín
    sannfæring. Ég tel að þau verði að hafa bein áhrif á sveitarfélögin hvað
    þetta varðar. Og líka varðandi veiðigjaldið. Það var ekki talið að 129.
    gr. ætti við um veiðigjöld. Það voru hliðaráhrif. Ég held t.d. varðandi
    fjárhagslegt mat að þá snúist það ekki um að ríkið geri upp hvern
    útgjaldalið við sveitarfélög upp á krónu eins og verktaki, heldur séum við
    að meta kerfislæg áhrif á sjálfstæða tekjustofna þeirra og tryggja að
    nýjum skyldum fylgi raunhæfur innleiðingargrundvöllur. Það var t.d. gert
    þegar grunnskólar voru færðir yfir til sveitarfélaganna. Þá var útsvarið
    hækkað: 80% til sveitarfélaganna og 20% í jöfnunarsjóð o.s.frv. En um
    samskipti ríkis og sveitarfélaga varðandi verkefni sem hafa verið flutt
    til sveitarfélaga þá þarf að taka það upp á grundvelli samstarfsvettvangs
    milli ríkis og sveitarfélaga og í viðræðum í sambandi við það. Þetta eru
    bæði lýðræðislega kjörnir fulltrúar, þingmenn sem eru í ríkisstjórn í
    þingræðisríkinu, og líka lýðræðislega kjörnir sveitarstjórnarfulltrúar og
    það verður að bera virðingu fyrir því. Ég ber mikla virðingu fyrir því að
    færa verkefni til nærsamfélagsins. Þá hefur sú ábyrgð með kjörna fulltrúa
    að gera en þá er ekki hægt að senda það til næsta sveitarfélags eða inn í
    byggðasamlag þar sem stjórn fagmanna er kannski við völd.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það væri gott að heyra viðhorf hv. þingmanns hvað þetta
    varðar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>