<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T19:57:13" skst="BHar" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 19:59:20 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T19:57:13">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="5">
      <ns:málsheiti>sveitarstjórnarlög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að fara í
    andsvar við mig. Aðeins varðandi það síðasta sem hann nefndi, um
    byggðasamlögin: Hér stendur nú fyrrverandi stjórnarformaður eins
    byggðasamlagsins og ég átta mig mjög á mikilvægi byggðasamlaga til þess að
    veita ákveðna þjónustu. Mér fannst svona í lokin eins og hæstv. ráðherra
    væri einhvern veginn að gera lítið úr því. En það getur verið mjög
    mikilvægt fyrir sveitarfélög að sameinast um ákveðna þjónustu í formi
    byggðasamlaga. Hæstv. ráðherra segir hér að hann telji að fjárlög falli
    utan þessara greina. Já, ég get alveg skilið þann skilning hæstv.
    ráðherra. En þá er auðvitað mikilvægt að það sé ekki verið að taka
    ákvarðanir í fjárlögum sem skera burtu eða taka út fjármagn sem ákveðið
    hafði verið að verja í einhver verkefni og hafði í rauninni fylgt
    kostnaðarmati þegar viðkomandi frumvörp fóru hér í gegn. Í dag er það
    náttúrlega þannig að við erum með lög um opinber fjármál og í
    fjármálastefnu, góðri fjármálastefnu, eiga auðvitað að koma upp öll
    verkefni sem viðkomandi ráðuneyti ætlar að sinna í viðkomandi málaflokkum.
    Það eiga líka að vera ákveðnar framkvæmdaáætlanir og kostnaðarmat á þessum
    verkefnum sem svo seytla inn í fjárlögin. Þannig að ef hingað koma inn
    frumvörp, eins og til að mynda framkvæmdaáætlunin um farsældina sem var
    hér áðan, það er reyndar þingsályktunartillaga en ekki frumvarp, þá á
    auðvitað að vera kostnaðarmat á þeim liðum sem þar eru. Og ef það hefur
    kostnaðaráhrif á sveitarfélögin þá ætti 143. gr. nú að gilda, annars ætti
    29. gr. gilda í dag, sem segir til um hvaða áhrif þetta hefur á
    sveitarfélögin. Þá getum við ekki samþykkt slíka þingsályktunartillögu eða
    frumvarp hér í þessum sal með þá greiningu, vitandi að fjármálaráðuneytið
    eða viðkomandi ráðuneyti nýtir sér svo tækifærið nokkrum mánuðum seinna og
    tekur út það fjármagn sem áætlað hafði verið að ætti að fara í þetta
    verkefni. Þannig hlýtur það að virka.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>