<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-15T19:59:28" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 20:01:41 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T19:59:28">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="5">
      <ns:málsheiti>sveitarstjórnarlög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég ber mikla virðingu fyrir sjálfstæði
    sveitarfélaga og sjálfstæðum tekjustofnum sveitarfélaga. Sjálfstæðir
    tekjustofnar og sveitarstjórnarstigið missa marks ef ríkið er
    ábyrgðaraðili á öllum umframkostnaði. Hv. þingmaður nefndi hérna
    kostnaðarmat. Það er rangt hugtak. Það sem við erum að tala um hérna er
    mat á fjárhagslegum áhrifum á ákveðnum stjórnarfrumvörpum, lögum og
    reglum, en ekki kostnaðarmat. Ef ríkið myndi alltaf greiða það sem upp á
    vantar myndi það grafa undan bæði sjálfsstjórnarrétti sveitarfélaganna og
    efnahagslegu aðhaldi sveitarfélaganna og því hlutverki kjörinna fulltrúa
    að fara með fjármál síns sveitarfélags og forgangsraða í þeim verkefnum
    sem kjörnir fulltrúar vilja vinna að í pólitískri baráttu sinni til að
    verða kjörnir o.s.frv. og að hafa ábyrga fjármálastjórn. Þessi ábyrga
    fjármálastjórn er í höndum sveitarstjórnarfulltrúa en ekki þegar eitthvert
    kostnaðarmat kemur: Jú, heyrðu, það vantar 100 milljónir hér og 100
    milljónir þarna og ríkið þarf að koma með meiri pening. Það eru ekki þau
    samskipti sem ég tel eiga að vera milli ríkis og sveitarfélaga. Ég tel að
    núverandi sveitarstjórnarstig með svona fjölbreyttan hóp og fámenn
    sveitarfélög — þá eru þessi samskipti mjög sérstök, m.a. hvað þetta
    varðar. Ég tel að við þurfum að fara að horfa á þetta miklu heildstæðara
    svo við getum raunverulega látið hina kjörnu fulltrúa fara með það
    hlutverk sem þeim er falið lögum samkvæmt og að sveitarstjórnarstigið sé
    það öflugt og sveitarfélögin séu það sterk að þau geti tekið á allri
    þeirri þjónustu sem þeim er færð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi börn með fjölþættan vanda þá vísa ég í svar hæstv.
    mennta- og barnamálaráðherra sem kom hér fram áðan og ég tel að þessi
    umræða muni örugglega og sannarlega halda áfram. En það breytir því ekki
    að þetta frumvarp sem hér er lagt fram er unnið í nánu samstarfi við
    sveitarstjórnarstigið og felur í sér miklar réttarbætur. Ég tel að það
    sama eigi við um 143. gr. sem og annað í þessu frumvarpi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>