<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-15T20:01:49" skst="BHar" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-15 20:04:24 -->

  <ns:umsýsla fundur="6" lgþ="158" tími="2026-09-15T20:01:49">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="5">
      <ns:málsheiti>sveitarstjórnarlög</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra aftur fyrir og ég
    biðst afsökunar á því ef orð mín í svona stuttum, knöppum andsvörum eru
    skilin með þeim hætti að sveitarfélögin geti verið óábyrg í sínum fjárhag
    og sent einhvern veginn reikninginn á ríkið.<!--segir: "sent ... reikninginn á sveitarfélagið." Meinar örugglega ríkið.-->
    Það er auðvitað alls ekki það sem sú sem hér stendur er að tala fyrir,
    alls ekki, heldur það að um sé að ræða samstarfsverkefni og þegar við hér
    setjum einhverjar kröfur á sveitarfélög um að veita ákveðna þjónustu þá
    getum við ekki gert það einhliða. Það þarf að meta hvaða áhrif það hefur á
    sveitarfélög. Eins og hæstv. ráðherra sagði áðan þarf einhvern veginn að
    vera raunhæfur innleiðingargrunnur, sem var orðið sem hæstv. ráðherra
    notaði og vísaði til þess þegar grunnskólinn var færður yfir á sínum tíma
    og þá breyttist hlutfallið í tekjuskattinum, útsvari og tekjuskatti
    ríkisins. Það sama átti sér stað þegar málefni fatlaðs fólks voru færð
    yfir. Eins og ég sagði áðan í ræðu minni þá eigum við skýrslur og
    greiningar á því. Það var búið að vinna alls konar greiningar áður en
    málefni fatlaðs fólks voru færð yfir, en það varð til aukinn kostnaður með
    nýjum lögum hér á Alþingi sem jók kostnaðinn sveitarfélagsmegin. Ég hef
    staðið í þeirri meiningu að 143. gr. væri til að tryggja sveitarfélög
    svolítið gagnvart þessu. Það væri til að aga vinnubrögð ráðherra og þings
    til að sjá til þess að það væru til raunverulegir fjármunir til að sinna
    þeirri þjónustu sem veitt er. Á endanum eru þetta auðvitað allt peningar
    frá skattgreiðendum og það er ótrúlega mikil orka sem hefur í gegnum
    tíðina farið í það að takast á milli ríkis og sveitarfélaga. Það er í
    rauninni ósanngjarnt gagnvart skattgreiðendum í þessu landi að við séum að
    eyða allri orkunni og pening í það í stað þess að finna hagkvæmustu
    leiðirnar til að veita góða þjónustu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég ætla bara að fá að nefna það líka: Jú, það
    er svo sem hægt að segja að sveitarfélög hafi sjálfstæða tekjustofna, en
    þeir eru bundnir í lögum og það eru ansi mörg mikil takmörk á því hvernig
    tekjustofnar sveitarfélaga eiga að vera og ég ætla ekkert að leggja til
    sérstakar breytingar á því. Ég vil bara hvetja hæstv. ráðherra til að sjá
    til þess að félagar hans í ríkisstjórninni, aðrir ráðherrar í þessari
    hæstv. ríkisstjórn, komi með kostnaðarmat skv. 143. gr. á öllum þeim
    frumvörpum sem fara í gegnum ríkisstjórnina frá þeim tíma sem við erum hér
    að leggja þetta mál fram í 1. umræðu og koma því í vinnu hér í
    þinginu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>