<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T13:31:11" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 13:33:51 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T13:31:11">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="27">
      <ns:málsheiti>störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Í óundirbúnum fyrirspurnatíma í fyrradag sagði
    hæstv. forsætisráðherra, með leyfi forseta:</ns:mgr>

    <!--Hann segir í gær, þær voru í fyrradag. / ii
https://www.althingi.is/altext/raeda/158/rad20260914T133654.html-->

    <ns:mgr>„Staða Íslands gagnvart Evrópusambandinu er óbreytt eins og hún
    var í tíð síðustu ríkisstjórnar.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Þessi orð kalla á svör. Við vöknuðum upp við
    það að eftir stíf fundarhöld ráðherra ríkisstjórnar Kristrúnar
    Frostadóttur við Evrópusambandið er búið að koma fram með þá túlkun að við
    séum með gilda aðildarumsókn. Það var ekki í tíð síðustu ríkisstjórnar eða
    ríkisstjórna. Ég veit það, ég var utanríkisráðherra í tveimur af þremur
    þessara ríkisstjórna. Það kom aldrei upp, ekki í samtölum mínum við
    fulltrúa ESB eða innan ríkisstjórnar, hvort sem það var ríkisstjórn
    Sjálfstæðisflokks, Bjartrar framtíðar og Viðreisnar eða í tveimur
    ríkisstjórnum Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna, að
    við værum með gilda aðildarumsókn, aldrei. Ef þessi aðildarumsókn er virk
    og í gildi þá er sömuleiðis þingsályktun sem var samþykkt um samning
    framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins við Ísland um svokallaða IPA-styrki,
    aðlögunarstyrki, í gildi. Það getur ekki annað verið. Og hvað fela þeir í
    sér, þessir IPA-styrkir, sem var hætt þegar Gunnar Bragi Sveinsson sleit
    þeim viðræðum? Það þýðir það að Evrópusambandið er að borga til
    aðildarríkja til að aðlaga sig að regluverki Evrópusambandsins. Það hefur
    t.d. borgað mikið til Tyrklands, sem sótti um aðild þegar ég var í
    menntaskóla. <ns:bjalla/> Eftir að þeir lækkuðu upphæðirnar eru þetta bara
    milljarðar eða tugir milljarða á ári. Við hljótum að spyrja okkur núna:
    <ns:bjalla/> Hvað er hæstv. ríkisstjórn að reyna að koma Íslandi í? Þessi
    fullyrðing stenst ekki <ns:bjalla/> og hún kallar á svör af hálfu
    forystumanna ríkisstjórnarinnar og kallar á umræðu hér í þinginu og í hv.
    utanríkismálanefnd.</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="ÞSv">Forseti biður hv. þingmenn um að virða
    ræðutímann.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>