<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T13:34:03" skst="JPZ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 13:36:14 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T13:34:03">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="27">
      <ns:málsheiti>störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Flokkar eins og Samfylkingin og Viðreisn hafa á
    tyllidögum gefið sig út fyrir það að hafa áhuga á menntamálum. En það er
    ljóst að aðkoma þeirra að málaflokknum hefur verið afar takmörkuð og
    tillögur þingmanna þeirra um að bæta stöðuna svo gott sem engar. Ekki er
    íslenskum nemendum um að kenna hver staðan er, þeir eru frábærir, heldur
    er það fullorðna fólkið, þjóðkjörnir leiðtogar sem eru kjörnir til að búa
    þannig um hnútana að árangur náist. Þar liggur ábyrgðin. Þögnin frá
    þingmönnum Samfylkingarinnar og Viðreisnar er ærandi, hvað þá þegar
    neyðarástand ríkir í málaflokknum. Hér er tungumálið, lýðræðið og
    framtíðarefnahagur landsins undir og því dugar þögnin ein ekki. Hvaða
    lausnir eða aðgerðir hafa þessir flokkar komið með á þessu þingi? Því er
    auðsvarað: Engar. Ég hvet menn til að andmæla mér hér í pontu og benda á
    lausnir og leiðir sem þessir flokkar hafa komið með á þessu
    þingi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hvar eru þingmenn ríkisstjórnarinnar sem er annt um menntakerfið?
    Hvar eru þeir? Ég auglýsi eftir þeim hér með í pontu. Hvenær ætla þeir að
    ræða leiðir og lausnir? Skipta grunnskólanemendur þessa þingmenn engu
    máli? Vakna engar spurningar hjá stjórnarliðum í kjölfar stöðunnar í
    menntamálum? Fólk er kosið hér á þing til að sinna þessum málum og ég hvet
    þingmenn þessara flokka, sérstaklega Viðreisnar og Samfylkingar, að gera
    það.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>