<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T13:36:24" skst="IngD" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 13:38:48 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T13:36:24">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="27">
      <ns:málsheiti>störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Nú berast fregnir af áformum hæstv.
    atvinnuvegaráðherra um að banna hvalveiðar með lagasetningu á
    yfirstandandi þingvetri. Mér finnst slík áform ráðherrans grafalvarleg og
    raunar óásættanleg, að ætla að banna heila atvinnugrein sem skapað hefur
    bæði störf og útflutningstekjur. Ég minni á að á annað hundrað manns eru
    með atvinnu í tengslum við hvalavertíðina, skila umtalsverðum
    gjaldeyristekjum, skapa vel launuð störf sem hafa veruleg áhrif á
    atvinnulíf og skatttekjur í nærumhverfi hvalstöðvarinnar í Hvalfirði.
    Þetta snýst ekki síst um atvinnufrelsi, atvinnuöryggi, verðmætasköpun og
    lífsafkomu fólks og fjölskyldna, ekki síst á Vesturlandi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Sem kunnugt er eru hvalveiðar og viðskipti með hvalaafurðir
    bannaðar innan Evrópusambandsins og ætlaði atvinnuvegaráðherra Viðreisnar
    líklega að láta hvalveiðar við Íslandsstrendur hverfa með aðildarsamningi
    við ESB en sem betur fer var henni ekki kápan úr því klæðinu því
    Íslendingar höfnuðu áframhaldandi aðildarviðræðum við sambandið. Rök
    ráðherra fyrir banni á hvalveiðum eru gamalkunn; þrýstingur að utan,
    viðskiptahagsmunir og dýravelferð. Svo er það eitt: Ráðherra talar einnig
    um að ekki sé hægt að selja afurðirnar. Bíðið við, það er bara alls ekkert
    hennar mál. Það er atvinnufrelsi á Íslandi og Hvalur hf. hefur hingað til
    getað selt sínar afurðir og hefur m.a. síðustu ár verið að þróa vinnslu
    járnbætiefnis úr hvalkjöti. Þetta er algerlega frábær og mikilvæg
    þróunarvinna sem getur bætt líf margra vitandi það að mjög margir glíma
    við járnskort. Til fróðleiks vil ég benda á að t.d. naut er með járn sem
    nemur um 40 milligrömmum per kíló en langreyður hefur 300 milligrömm per
    kíló; það er gígantískur munur á þessum tveimur tegundum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil einnig geta þess að ég heimsótti hvalstöðina í sumar og
    fylgdist með móttöku tveggja langreyða og verkun þeirra. <ns:bjalla/> Það
    voru algjörlega frábærar móttökur og lærdómsríkt. Ég hvet þingheim til að
    sækja hvalstöðina heim og kynnast þessari atvinnugrein með því að sjá
    hvernig hlutirnir fara þar fram.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>