<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T13:38:57" skst="KGH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 13:41:14 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T13:38:57">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="27">
      <ns:málsheiti>störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Hæstv. dómsmálaráðherra sagði í viðtali í vor að
    stóra verkefni stjórnvalda í útlendingamálum væri að almenningur upplifði
    að stjórnvöld hefðu stjórn á aðstæðum í málaflokknum. Dæmi sem tekið hefði
    verið um árangur stjórnvalda væri sú staðreynd að fjöldi útlendinga væri
    nú að hverfa af landi brott þessa dagana.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Við þetta vil ég gera athugasemdir. Það er ekki nóg
    að fólk upplifi að hlutirnir séu að skána. Hlutirnir þurfa raunverulega að
    skána. Ástæður þess að einhverjir hópar útlendinga eru að fara af landi
    brott er einfaldlega atvinnuástandið hér á landi, minna er nú um atvinnu
    en áður. Og er hælisleitendum raunverulega að fækka? Bæði Merz
    Þýskalandskanslari og forsætisráðherra Danmerkur, Mette Frederiksen, hafa
    sagt að hugmyndin að baki alþjóðlegri vernd hafi alltaf verið sú að veita
    fólki tímabundið skjól og síðan eigi fólkið að fara aftur til síns heima
    þegar ástandið hefur lagast.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hér á landi eru skráðir tæplega 1.000 Sýrlendingar, margir með
    stöðu flóttamanna með alþjóðlega vernd. Bráðum eru tvö ár, frú forseti,
    síðan borgarastyrjöldinni í Sýrlandi lauk. Á meðan á stríðinu stóð
    streymdu allt að 12 milljónir flóttamanna frá átakasvæðum til Evrópu og
    einhverjir hingað til lands. Einræðisherrann og illvirkinn Assad, sem fólk
    er að flýja, hefur nú einhvers konar stöðu hælisleitanda í Moskvu og engin
    ógn stendur lengur af þessum manni. Lönd Evrópu eru að vinna hörðum höndum
    að því að senda Sýrlendinga aftur til síns heima og herma fréttir að í
    Austurríki sé í gangi herferð í þeim efnum. Hollendingar, Norðmenn og
    Þjóðverjar eru þegar byrjaðir að senda Sýrlendinga heim til sín. Hvað hafa
    íslensk stjórnvöld aðhafst til að senda Sýrlendinga sem hér hafa haft
    skjól í alþjóðlegri vernd eða hafa óskað eftir slíkri vernd úr landi og
    til síns heima þar sem þau eiga möguleika á að sameinast fjölskyldum sínum
    að nýju og geta lagt hönd á plóg við uppbyggingu síns heimalands eftir
    langvarandi átök?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>