<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T13:41:23" skst="RGuðb" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 13:43:36 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T13:41:23">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="27">
      <ns:málsheiti>störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Mig langar enn og aftur að ræða fjölmiðlanefnd
    sem er sjálfstæð stjórnsýslunefnd sem heyrir undir menningar-, nýsköpunar-
    og háskólaráðuneytið og kostar skattgreiðendur rúmlega 100 millj. kr. á
    ári. Nú er svo komið að stjórnendur hlaðvarpsins Komið gott hafa fengið
    lokatækifæri til að skrá hlaðvarp sitt sem fjölmiðil ellegar eigi þær yfir
    höfði sér stjórnvaldssekt sem geti numið allt að 10 millj. kr. Ég hef
    tekið sambærilegt mál hér upp í þingsal áður og velt upp þeirri spurningu:
    Af hverju er ríkisvaldið að skipta sér af hlaðvörpum sem einstaklingar
    halda úti? Og ég er þeirrar skoðunar að þessi nefnd eigi að leggja niður
    og færa einhver verkefni annað. Hver er nauðsyn þess að reka slíka
    ríkisnefnd eða ríkisstofnun sem eltir uppi einstaklinga sem halda úti
    hlaðvörpum þar sem þeir eru að koma skoðunum sínum á framfæri og, eins og
    í þessu tilviki, að spjalla á léttu nótunum um hin ýmsu hugðarefni? Þarna
    hafa tveir einstaklingar búið til skemmtiþátt úr engu en ríkið mætir á
    svæðið og finnst tilefni til að skipta sér af og beita þá íþyngjandi
    skilyrðum. Fjölmiðlanefnd vill flokka spjall vinkvennanna sem fjölmiðil
    því í hlaðvarpinu væri vali á umfjöllunarefni stjórnað og fjárhagslegur
    ávinningur virtist vera af miðlum hljóðvarpsins. Hæstv. menningar-,
    nýsköpunar- og háskólaráðherra Logi Einarsson lýsti því yfir í sumar að
    vinna væri hafin við að breyta lögum þarna um, þannig að hlaðvörp verði
    ekki lengur skráningarskyld sem fjölmiðlar. Vonandi hefur hann meint það
    en engu að síður heldur fjölmiðlanefnd áfram að hamast í stjórnendum
    hlaðvarpa og finnst viðeigandi að gefa í þessu tilviki hljóðvarpinu Komið
    gott lokafrest til næstu mánaðamóta til skráningar. Ríkið er áfram
    upptekið af því að kveða niður sköpunarkraft einstaklinga og drepa
    einkaframtak. Er ekki, virðulegur forseti, komið gott af því?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>