<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T13:43:46" skst="EBB" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 13:46:06 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T13:43:46">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="27">
      <ns:málsheiti>störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Norðurslóðir hafa á örfáum árum breyst úr
    jaðarsvæði í eitt mikilvægasta landfræðilega og öryggispólitíska svæði
    heims. Loftslagsbreytingar valda hraðri bráðnun hafíss, nýjar
    siglingaleiðir hafa og munu opnast að svæðinu og aðgengi að auðlindum
    norðurslóða verður auðveldara. Vegna þessa finnum við fyrir samkeppni
    ríkja um áhrif á þessu mikilvæga svæði. Bandaríkin, alla vega
    Bandaríkjaforseti, líta í auknum mæli á norðurslóðir sem mikilvægan þátt í
    sínum heimsáhrifum. Áhugi Bandaríkjanna á Grænlandi og öðrum ríkjum á
    svæðinu er verulegur, bæði vegna landfræðilegrar stöðu þeirra en ekki síst
    vegna náttúruauðlinda og öryggishagsmuna. Rússland er hins vegar það ríki
    sem hefur stærsta hernaðarlega og efnahagslega fótspor á norðurslóðum, ef
    svo má segja. Stjórnvöld í Moskvu leggja mikla áherslu á norðurleiðina og
    auðlindir svæðisins. Þau hafa í þessu samhengi byggt upp umfangsmikla
    innviði, ekki síst hernaðarlega á þessu svæði. Kanada leggur fyrst og
    fremst áherslu á fullveldi sitt á norðurslóðum en jafnframt á stöðu
    frumbyggja og uppbyggingu samfélaga. Ný áætlun kanadískra stjórnvalda frá
    árinu 2026 felur í sér meira en 40 milljarða dala fjárfestingu í vörnum,
    innviðum og efnahagsþróun á norðurslóðum í samstarfi við frumbyggja og
    heimastjórnir. Konungsveldið Danmörk hefur ákveðna sérstöðu á svæðinu
    vegna Grænlands og Færeyja. Áhersla þeirra er nú að styrkja fullveldi
    sitt, auka eftirlit og hernaðarlegan viðbúnað, m.a. með nýjum skipum,
    drónum, ratsjám og aukinni viðveru á Grænlandi. Að mínu mati verður
    framtíð norðurslóða ekki ákvörðuð með hervaldi heldur getu ríkja til
    samstarfs þar sem réttur frumbyggja er tryggður. Það á m.a. við þegar
    kemur að virðingu fyrir sjónarmiðum og sjálfsákvörðunarrétti
    Grænlendinga.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Þingheimi til upplýsinga þá verða þessi mál
    m.a. rædd í næstu viku á fundi formanna þingmannanefnda um málefni
    norðurslóða. Mín skilaboð á fundinum verða skýr: <ns:bjalla/> Norðurslóðir
    verða að vera svæði friðar, sjálfbærrar þróunar og sameiginlegrar
    ábyrgðar. Það eru hagsmunir allra ríkja á svæðinu, ekki síst
    Íslands.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>