<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T13:46:18" skst="ÁLÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 13:48:36 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T13:46:18">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="27">
      <ns:málsheiti>störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Fátt hefur jafn mikil áhrif á kjör fólks og
    afborganir húsnæðislána. Núna loksins virðast allir vera orðnir sammála um
    slæm áhrif verðtryggingarinnar á hagkerfið og heimilin, nokkuð sem
    Hagsmunasamtök heimilanna hafa bent á allt frá bankahruninu við lítinn
    hljómgrunn. Þáverandi ríkisstjórn missti því miður af einstöku tækifæri
    til að afnema hana því að auðvitað átti að gera það þegar vextir voru í
    0,75% og fjölmargir höfðu skipt yfir í óverðtryggð lán. Enginn sem hefur
    áhyggjur af henni í dag hvatti til þess þá, ekki heldur Seðlabankinn. Ef
    það hefði verið gert hefðu vextir aldrei orðið jafn háir og þeir hafa
    orðið því að það er staðreynd að stýritækið vaxtahækkanir, sem
    Seðlabankinn hefur óspart beitt á undanförnum árum, virkar lítið og illa í
    verðtryggðu hagkerfi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þegar vaxtahækkunartímabil Seðlabankans hófst var rétt um
    þriðjungur fasteignalána verðtryggð en núna er hlutfallið komið yfir tvo
    þriðju. Aukning verðtryggðra lána hefur því verið gríðarleg á undanförnum
    árum enda eina úrræði fólks í nauðvörn til að flýja óviðráðanlega
    vaxtabyrði. Í viðtali á Sprengisandi síðastliðinn laugardag lýsti
    seðlabankastjóri yfir áhyggjum af aukningu verðtryggðra lána, m.a. vegna
    þess að verðtryggingin dragi úr tilætluðum áhrifum vaxtahækkana
    Seðlabankans. Það hefur lengi vafist fyrir mér hvernig það fari saman að
    hækka vexti svo mikið að fólk flýi unnvörpum í verðtryggð lán og meintur
    vilji til að halda hérna uppi nafnvaxtakerfi. Það blasir við að
    vaxtahækkanir eru ekki líklegar til árangurs í baráttu við verðbólgu þegar
    þær bíta aðeins á um þriðjung heimila landsins. Samt hefur
    seðlabankastjóri ítrekað hvatt fólk til að leita ráðgjafar bankanna þegar
    vextir fara að bíta, vitandi að eina lausn þeirra væri að vísa fólki í
    verðtryggð lán sem svo aftur drægi úr virkni þess tækis sem hann hefur
    beitt af mikilli hörku.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Flótti fólks yfir í verðtryggð lán er sennilega eina ástæða þess
    að vanskil heimilanna hafa ekki aukist en því miður fara afleiðingar
    þeirra að bíta að nokkrum tíma liðnum og reyni fólk að skuldbreyta aftur
    þegar um hægist verður höfuðstóll skuldarinnar mun hærri en hann var áður.
    <ns:bjalla/> „Actions speak louder than words“, svo ég sletti, með leyfi
    forseta, eða gjörðir segja meira en orð. Hér fara orð og gjörðir engan
    veginn saman. </ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="ÞSv">Þetta slapp til fyrst hv. þingmaður þýddi
    orðin.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>