<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T13:48:51" skst="GrímG" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 13:50:28 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T13:48:51">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="27">
      <ns:málsheiti>störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Í gær naut ég þess í blíðskaparveðri að vera
    viðstaddur gangsetningu Vaðölduvers í boði — í boði hverra?</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="ÞSv"> Fjármálaráðherra.</ns:forseti></ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:frammíkall>Landsvirkjunar.</ns:frammíkall> Það var nú
    Landsvirkjun, já. Það var hins vegar hæstv. fjármálaráðherra sem
    gangsetti. Við aðstæður sem þessar svellur manni móður í brjósti um það
    hvað það er raunverulega sem við getum gert, Íslendingar. Landsvirkjun var
    stofnuð 1965 og síðan höfum við virkjað fallvötnin, virkjað jarðhitann og
    virkjað vindinn nú síðast, allt til hagsbóta fyrir land og lýð. Við eigum
    líka frábært lífeyrissjóðakerfi sem gerir það að verkum að efnahagur
    almennings er ásættanlegur á efri árum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Við eigum að vera stolt af því sem við gerum vel og
    vanda okkur í hvívetna við það sem við tökum okkur fyrir hendur.
    Landsvirkjun og hvernig hún hefur þróast er dæmi um það hvað við gerum
    vel. Landsvirkjun var stofnuð 1965 í því skyni að selja raforku til
    stóriðju. Stóriðjan er þannig sú atvinnugrein sem hefur hjálpað okkur við
    það að virkja þannig að við skulum ekki gleyma því að ef við hefðum ekki
    einhvern til að kaupa rafmagnið þá væri til lítils að virkja það.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>