<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T13:50:35" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 13:52:42 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T13:50:35">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="27">
      <ns:málsheiti>störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Dómsmálaráðherra segir að fækkun erlendra
    ríkisborgara um 500 frá desember sýni fram á að stjórnvöld séu að ná tökum
    á útlendingamálum. Mikið vildi ég að þetta væri rétt en Einar Geir
    Þorsteinsson, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Hafnarfirði, bendir réttilega á
    að mögulega sé verið að slá ryki í augu almennings. Pólverjum og Litáum
    hefur fækkað um tæplega 1.200 frá því í desember, meira en tvöföld sú
    fækkun sem ráðherra státar sig af. Það skýrist að mestu leyti af frosti á
    byggingarmarkaði og versnandi efnahagshorfum. Á sama tíma hefur
    ríkisborgurum fjölgað frá svokölluðum MENAP-löndum; Mið-Austurlönd,
    Norður-Afríka, Pakistan, Afganistan og Tyrkland, lönd sem eru oftast ekki
    talin líkt þenkjandi Íslandi. Í mörgum þessara ríkja eru réttindi kvenna
    og barna algerlega óásættanleg. Í Danmörku sýna tölur að karlar frá þessum
    sömu ríkjum eru allt að fjórum sinnum líklegri til að fremja ofbeldisbrot
    en Danir. Nýjar tölur frá Íslandi sýna að fólk frá MENAP-löndunum er allt
    að rúmlega fjórum sinnum líklegra til að þiggja hér bætur. Það vantar líka
    að segja hversu stór hluti fjölgunar íslenskra ríkisborgara skýrist af því
    að erlendir íbúar hafa fengið íslenskt ríkisfang. Í fyrra fengu 1.057
    manns íslenskt ríkisfang, 68% fleiri en árið áður. Það er meira en tvöföld
    sú tala sem ráðherra kallar fækkun. Samkvæmt tölum Útlendingastofnunar
    voru gefin út 13.639 dvalarleyfi í fyrra. Þar er stærsti flokkurinn vegna
    fjölskyldusameiningar eða 3.313 leyfi. Þannig að þeim sem fækkar er fólk
    sem kom til að vinna og er á förum vegna lélegs efnahagsástands í boði
    ríkisstjórnarinnar. Tölurnar styðja ekki að verið sé að ná stjórn á
    málaflokknum, fremur að vandamálið sé að færast til. Tökum af alvöru á
    málaflokknum og Miðflokkurinn er til í þá vinnu með
    ríkisstjórninni.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>