<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T13:52:49" skst="KÁB" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 13:55:06 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T13:52:49">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="27">
      <ns:málsheiti>störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það er lágmarkskrafa að gagnrýni byggi á
    staðreyndum. Undanfarna daga hafa margir í stjórnarandstöðu haldið því
    fram að ríkisstjórnin ætli að ná fram hallalausum fjárlögum á næsta ári
    með því að skera niður framlög til velferðarmála. Það stenst einfaldlega
    ekki. Þrátt fyrir mikið aðhald í fjárlagafrumvarpinu er fjármunum
    forgangsraðað í grunnþjónustu velferðarkerfisins. Þar eru áætlanir um að
    auka framlög til heilbrigðismála um 16,2 milljarða, framlög til málefna
    barna og fjölskyldna um 8,8 milljarða og framlög til menntamála og
    atvinnustefnu verða aukin um 4,5 milljarða kr. á næsta ári. Árangur af
    stefnu ríkisstjórnarinnar er nú þegar greinilegur þegar ríkisstjórnin er
    tæplega tveggja ára. Við höfum ítrekað minnst á fjölgun hjúkrunarrýma en á
    síðustu 12 mánuðum hafa 244 ný hjúkrunarrými verið tekin í notkun. Enn
    fleiri eru í undirbúningi. Nú bíður ekkert barn eða ungmenni eftir plássi
    á meðferðarheimili á vegum ríkisins. Stór skref hafa verið tekin til að
    bæta kjör öryrkja og tekjulægri eldri borgara. Frá og með næstu áramótum
    taka greiðslur almannatrygginga mið af hækkun launavísitölu. Húsnæðisverð
    hefur lækkað að raunvirði og hlutfall fyrstu kaupenda á íbúðamarkaði er
    það hæsta frá því fyrir hrun. Greining þjóðhagsráðs sýnir jafnframt að
    kaupmáttur hefur aukist frá árinu 2024 hjá öllum tekjutíundum. Samhliða
    þessu hefur verið og verður áfram ráðist í mikla uppbyggingu innviða í
    samgöngum víða um land og framkvæmdir eru til að mynda hafnar við stækkun
    Sjúkrahússins á Akureyri. Þetta er gert á sama tíma og ríkisstjórnin
    leggur fram fyrsta hallalausa fjárlagafrumvarpið í tæpan áratug. Þetta
    þýðir auðvitað ekki að ríkisstjórnin hafi leyst úr öllum vandamálum
    samfélagsins. Verðbólgan, sem má að mestu leyti rekja til ytri áhrifa, er
    enn of mikil. Biðlistar eru enn til staðar á ýmsum stöðum. Verkefnin eru
    næg. Við tökumst eðlilega á um strauma og stefnur í stjórnmálum. Það er
    aftur á móti eðlileg krafa að pólitísk umræða byggi á staðreyndum.
    <ns:bjalla/> Hallalaus fjárlög og sterk velferðarþjónusta eru ekki
    andstæður. Markmið ríkisstjórnarinnar er að ná hvoru tveggja.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>