<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T13:55:15" skst="HHL" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 13:57:42 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T13:55:15">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="27">
      <ns:málsheiti>störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Í dag er dagur íslenskrar náttúru og náttúran
    grætur. Hún grætur stórum þykkum regndropum sem berja á rúðum landsmanna.
    Hún grætur yfir því að ríkisstjórnarflokkarnir sem lofuðu skýrara og
    sterkara regluverki um sjókvíaeldi hafi ekki enn tekist að ljúka því
    mikilvæga verkefni. Hún grætur yfir því að fólk sem hefur áhyggjur af
    vindorkuverum í náttúru Íslands sé líkt við Trump í orðræðu hæstv.
    umhverfismálaráðherra. Hún grætur fyrst og fremst yfir því að rödd hennar
    hafi nánast þagnað hér á Alþingi Íslendinga; að náttúruvernd sé farin úr
    tísku, líkt og flík sem maður eigi helst að skammast sín fyrir að klæðast.
    En þó að stjórnmálin bregðist þá veit fólkið í landinu að náttúran er eitt
    það dýrmætasta sem við eigum. Hún er grunnur að heilsu okkar, bæði á sál
    og líkama. Hún er líka stoð menningar okkar og lista, eins og sjá má í
    verkum Kjarvals, Rúríar og RAX, heyra í tónlist Bjarkar og finna í verkum
    skálda á borð við Steinunni Sigurðardóttur og Jónas Hallgrímsson. <!--Kíkti í innsenda ræðu hennar og það stendur RAX ☺ / ii-->Síðast
    en ekki síst er náttúran undirstaða efnahagslegrar velferðar Íslands;
    sjávarútvegur, landbúnaður, ferðaþjónusta og orkumál, allt eru þetta
    greinar sem treysta á nyt af einstakri náttúru Íslands.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við vitum, virðulegi forseti, að það má ekki blóðmjólka náttúruna.
    Ef gengið er of nærri henni tapa allir til lengri tíma. Þess vegna er
    mikilvægt að nýting hennar sé sjálfbær, varfærin og byggð á
    langtímahugsun. Þess vegna verðum við að þora að ræða þessa
    langtímahagsmuni, líka þegar það er óþægilegt. Við þurfum að muna að
    náttúruvernd er ekki hindrun fyrir velferð heldur ein af forsendum hennar,
    og þá kannski styttir upp og birtir til.<ns:bjalla/></ns:mgr>

    <ns:mgr>Munum, kæru þingmenn og kæru landsmenn, í dag og alla aðra daga að
    þakka fyrir þau fjölbreyttu auðæfi sem náttúra Íslands færir okkur. Þau
    eru ekki sjálfsögð. Gleðilegan dag íslenskrar náttúru.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>