<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T13:57:48" skst="DagH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 14:00:11 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T13:57:48">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="27">
      <ns:málsheiti>störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Burt séð frá kjördæmum gleðjast vonandi þingmenn og
    landsmenn allir með mér yfir fréttum sem bárust frá Bakka við Húsavík þar
    sem upp eru komin áform um eitt stærsta gagnaver landsins, 100 MW verkefni
    og fjárfestingu upp á 120 milljarða kr. Á framkvæmdatíma gæti þetta skapað
    400–500 störf og svo varanleg störf sem nema fleiri tugum eða um 50 ef
    rétt er áætlað. Þá eigum við eftir að taka inn alla afleidda atvinnu sem
    gæti skapast. Þetta skiptir auðvitað gríðarlega miklu máli fyrir samfélag
    sem varð fyrir ótrúlega miklu höggi. Þetta gerist ekki af sjálfu sér.
    Ríkisstjórnin byggir þarna ofan á margra ára heimavinnu Eims, Norðurþings,
    Landsvirkjunar og Orkuveitu Húsavíkur. Hæstv. forsætisráðherra hefur
    skipað starfshóp um atvinnumál svæðisins og stutt hefur verið við
    styrkingu raforkuinnviða og sérstakur verkefnastjóri stórfjárfestinga í
    forsætisráðuneytinu starfar nú og samræmir aðkomu stjórnvalda. Þetta
    leiðir af atvinnustefnu, heildstæðri stefnu um hvernig við búum til
    raunverulega verðmætasköpun sem skilar eiginlegum ávinningi fyrir
    landsmenn alla en ekki skammtímaávinningi. Þetta skapar grundvöll fyrir
    alvöruháframleiðnigreinar hérna á Íslandi, fjölbreyttari útflutning og
    kjölfestuverkefni á landsbyggðinni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Það verður að vera ábyrgð á bak við hvert megavatt í
    gagnaveri. Þessi iðnaður er ekki óumdeildur á heimsvísu. Þetta getur verið
    þjóðaröryggismál, ég leyfi mér að fullyrða það. Ávinningurinn verður að
    sjást í störfum, skatttekjum og þekkingu sem verður til á Íslandi, og
    aftur segi ég, raunverulegri verðmætasköpun sem ógnar ekki stafrænu
    fullveldi landsins eða gerir okkur háð tengingum við aðra sem sinna ekki
    gagnaflutningi með ábyrgum hætti. Ég kalla því eftir að við setjum okkur
    skýra stefnu um að tryggja gagnsæi um raunverulega eigendur, endanotendur
    og eðli þeirrar starfsemi sem reikniaflið á að þjóna því stafrænt
    fullveldi er ekki sjálfgefið og það er sérstakt fjöregg sem við þurfum að
    passa upp á.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. <ns:bjalla/> Endurnýjanleg orka, kalt loftslag og öruggt
    samfélag skapa Íslandi mjög góð skilyrði til að stunda þennan iðnað.
    <ns:bjalla/> Ég hlakka til að sjá hvernig við sköpum þessum iðnaði norður
    á Bakka farsæla framtíð.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>