<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T14:00:22" skst="SER" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 14:02:45 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T14:00:22">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="27">
      <ns:málsheiti>störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Mig langar að tala um mikilvægi þess að afla
    tekna til að eiga fyrir útgjöldum, þar á meðal lögboðnum útgjöldum,
    viðhaldi og nýframkvæmdum. Hver og ein einasta þjóð þarf að afla tekna til
    að vera sjálfbær í sínum rekstri. Það er pólitík. Það er líka pólitík að
    gefa afslætti af sköttum og gjöldum. Það er líka pólitík. Við höfum verið
    að gefa afslætti af veiðigjöldum. Núverandi ríkisstjórn hefur tekið á því.
    Við höfum verið að gefa afslætti af tekjuskatti í hæstu tekjutíundinni.
    Það er pólitík. Og við höfum líka verið að gefa afslátt af
    virðisaukaskatti hjá baðlónum. Getur einhver útskýrt þá pólitík fyrir mér?
    Baðlón? Jú, ferðaþjónusta. Geta Samtök atvinnulífsins og Samtök
    ferðaþjónustunnar útskýrt fyrir mér af hverju fullur virðisauki er af
    bílaleigum en miklu lægri á baðlónum? Er hvort tveggja ekki ferðaþjónusta?
    Og af hverju er yfirleitt verið að gefa afslátt af gjöldum hjá þeim
    fyrirtækjum sem best standa í samfélaginu og eru aflögufær? Ég nefni
    bankana sem eru aflögufærir um 100 milljarða á ári og eru að kvarta núna
    undan 6 milljarða auknum skatti. Kvarta. Almenningur kvartar ekki yfir því
    að þurfa að borga sín gjöld. Hann veit að það er samhengi á milli
    hlutanna. Ef við öflum tekna þá eigum við fyrir þeim útgjöldum sem eru
    lögboðin í þessu landi til heilbrigðismála, menntamála, vegagerðar og ég
    gæti haldið áfram hér í allan dag. Við eigum að afla tekna til að búa til
    gott samfélag. Norræna módelið er fyrirmynd í heimi hér. Af hverju er
    norræna módelið fyrirmynd í heimi hér? Það er vegna þess að það er byggt
    upp á sósíaldemókratískri pólitík sem gerir ráð fyrir samfélögum. Það
    gerir ráð fyrir samfélögum fólks en ekki sundrungu. <ns:bjalla/> </ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Í þessum löndum hefur félagshyggjan alltaf virkað
    betur en frjáls pólitík sem fjallar um frjálshyggju sem er fyrir
    fáa.<ns:frammíkall>Heyr, heyr.</ns:frammíkall></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>