<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T14:02:52" skst="ÁBH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 14:05:08 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T14:02:52">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="27">
      <ns:málsheiti>störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Dagur íslenskrar náttúru er sannarlega í dag.
    Þegar ég hugsa um íslenska náttúru verður mér hugsað til þess hvað hún
    gefur mér mikið, hvað hún gefur samfélaginu mikið. Ég hugsa líka um börnin
    mín, um það sem ég vil að þau fái að upplifa og þeirra börn á eftir þeim,
    að þau geti gengið inn í íslensk víðerni, fundið kyrrðina og horft yfir
    stórkostlegt landslag þar sem ekkert mannvirki rýfur sjóndeildarhringinn.
    Upplifað þessa sérstöku tilfinningu að standa frammi fyrir náttúru sem fær
    einfaldlega að vera náttúra.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Um 40% af víðernum Evrópu er að finna hér á Íslandi og ábyrgð
    okkar er mikil þegar kemur að því að varðveita þau því þetta eru ómetanleg
    verðmæti. Það sem við verndum í dag er arfur komandi kynslóða og náttúran
    þarf ekki að réttlæta tilveru sína með efnahagslegum ávinningi. Hún hefur
    gildi í sjálfri sér. Þess vegna þótti mér sérstaklega mikilvægt að við
    skyldum í vor stíga stórt skref í náttúruvernd þegar Alþingi samþykkti
    nýja löggjöf um vindorku. Við styrktum verndarflokk rammaáætlunar og
    settum skýr mörk um það hvar vindorkuver geta risið. Vindmyllur eru
    gríðarstór mannvirki og áhrif þeirra ná langt út fyrir þann blett sem þær
    standa á. Þær geta breytt ásýnd heilu landslaganna, haft áhrif á víðerni,
    fuglalíf og upplifun okkar af náttúrunni. Í gær þegar fyrsta vindorkuver
    landsins var gangsett við hátíðlega athöfn orðaði umhverfis-, orku- og
    loftslagsráðherra stefnuna skýrt, með leyfi forseta:</ns:mgr>

    <!--https://www.facebook.com/jpjohannsson/videos/vindorkuver-munu-ein-->

    <ns:mgr>„Vindorkuver munu einvörðungu rísa á örfáum stöðum, í sátt við
    náttúru og nærsamfélag, þar sem starfsemin er til þess fallin að styðja
    við atvinnu- og byggðaþróun og hagkvæma uppbyggingu
    flutningskerfis.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta skiptir máli. Framtíðarsýn okkar á ekki að vera sú að
    vindmyllur verði sjálfsagður hluti af íslensku landslagi, þvert á móti.
    Við eigum að velja fáa staði af mikilli kostgæfni og standa vörð um þau
    svæði sem við viljum vernda fyrir komandi kynslóðir. Við erum með landið
    að láni rétt á meðan við stöldrum við hér á þessari jörð <ns:bjalla/> og
    ábyrgð okkar gagnvart komandi kynslóðum verður ekki aðeins mæld í því sem
    við byggjum upp heldur líka í því sem við höfum vit á að
    varðveita.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>