<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T14:05:18" skst="GAS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 14:07:35 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T14:05:18">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="27">
      <ns:málsheiti>störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Hér fyrr í störfum þingsins kom hv. þm. Jón
    Pétur Zimsen og óskaði eftir fulltrúum stjórnarflokkanna í umræðu um
    menntamál. Það er mér ljúft og skylt að mæta hér og upplýsa þingmanninn um
    stöðu menntamála í landinu og hvaða aðgerðir eru í gangi, þótt ég
    viðurkenni að það komi mér á óvart að hann hafi ekki orðið var við
    aðgerðir og skref ríkisstjórnarinnar í menntamálum á síðastliðnum
    árum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hv. þingmaður er vel að sér í menntakerfinu, starfaði áður við
    stefnumótun menntamála í menntamálaráðuneytinu undir forystu Lilju
    Alfreðsdóttur og í tíð síðustu ríkisstjórnar sáum við því miður sögulegt
    fall í námsárangri íslenskra nemenda í PISA-könnuninni. Blessunarlega
    hefur hægt á þeirri þróun og byrjað að snúa henni við með nýrri sókn í
    menntamálum. Í tíð síðustu ríkisstjórnar voru samræmd próf lögð af þannig
    að yfirvöld og sveitarfélög höfðu enga yfirsýn yfir stöðu á námsmati
    nemenda sinna. Þessu hefur verið snúið við með innleiðingu matsferils.
    Áratugum saman, og sérstaklega undir forystu þessara flokka,
    Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, í menntamálaráðuneytinu, hefur
    verið ákall vegna skorts á námsgögnum, árum saman, frá því að skólarnir
    fóru frá ríki til sveitarfélaga. Blessunarlega er að koma innspýting í
    gerð námsgagna á Íslandi núna strax á næsta ári, 500 milljóna innspýting.
    Við höfum einnig innleitt símafrí til að veita nemendunum okkar aukið
    svigrúm til að einbeita sér að náminu. Næst á að skoða samfélagsmiðlana
    því að við sjáum einfaldlega í tölunum hvernig samfélagsmiðlar hafa
    neikvæð áhrif á námsárangur barnanna okkar. Við erum einnig búin að setja
    verkmenntaskólana í algeran forgang með sögulegri uppbyggingu
    verkmenntaskóla úti um allt land. Það skiptir máli að við útskrifum
    iðnaðarmenn á Íslandi og þetta erum við að taka föstum tökum. Á
    þingmálaskránni núna í vetur er verið að leggja fram þriðju
    aðgerðaáætlunina í menntastefnu til 2030. Þar er sérstaklega verið að
    leggja áherslu á STEM-greinar, að við horfum í raunvísindin, horfum í
    kjarnagreinarnar og eflum þær grunngreinar sem eru undirstaða náms á
    Íslandi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Allt eru þetta skref sem hafa verið stigin undir þessari
    ríkisstjórn og stjórnarflokkarnir í heild sinni hafa mælt fyrir. Ég hvet
    hv. þingmann til að halda áfram að taka virkan þátt í menntamálum og í
    þeim málum sem verið er að leggja fram hér í þinginu. <ns:frammíkall>Heyr,
    heyr.</ns:frammíkall></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>