<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-16T14:08:58" skst="DMK" tegflm="R" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 14:13:25 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T14:08:58">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="74">
      <ns:málsheiti>staðfesting ríkisreiknings 2025</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um staðfestingu
    ríkisreiknings árið 2025 í samræmi við ákvæði laga um opinber fjármál.
    Frumvarpið felur ekki í sér nýjar fjárheimildir heldur lögbundna
    staðfestingu ríkisreiknings.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ríkisreikningur er gerður á grundvelli alþjóðlegra
    reikningsskilastaðla fyrir opinbera aðila, IPSAS. Ríkisendurskoðandi
    áritar bæði samstæðuársreikning ríkissjóðs og ársreikning A-hluta án
    fyrirvara. Það er álit ríkisendurskoðanda að reikningarnir gefi glögga
    mynd af fjárhagsstöðu ríkissjóðs, afkomu og breytingu á handbæru fé árið
    2025.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Á árinu voru allir alþjóðlegir reikningsskilastaðlar fyrir
    opinbera aðila sem tekið höfðu gildi innleiddir og ekki reyndist þörf á
    frekari frestun. Áfram er þó unnið að því að ná að fullu utan um einstaka
    þætti sem staðlarnir taka til.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Afkoma samstæðu A-, B- og C-hluta samkvæmt IPSAS-reikningsskilum
    var neikvæð um 182 milljarða árið 2025, samanborið við neikvæða afkomu um
    60 milljarða árið 2024. Aukin gjaldfærsla vegna lífeyrisskuldbindinga
    skýrir stóran hluta breytingar á afkomu milli ára, en hún nam 140
    milljörðum árið 2025 samanborið við 47 milljarða árið áður.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Rekstrarafkoma ríkisreiknings er birt samkvæmt
    reikningsskilastöðlum fyrir opinbera aðila, IPSAS, eins og áður var nefnt,
    en heildarafkoma í fjármálaáætlun og fjárlögum er birt samkvæmt
    hagskýrslustaðli, svonefndum GFS-staðli. Báðum aðferðum er ætlað að
    tryggja samkvæmni og alþjóðlega samanburðarhæfni. Afkoma samstæðu A-, B-
    og C-hluta samkvæmt IPSAS er því ekki beinlínis samanburðarhæf við afkomu
    A1-hluta á GFS-grunni fjárlaga, enda er bæði umfang uppgjörsins og
    uppgjörsgrunnurinn ólíkur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>A1-hluti er sú starfsemi ríkisins sem er einkum fjármögnuð með
    skatttekjum, lögbundnum þjónustutekjum og framlögum. Afkoma A1-hluta
    samkvæmt alþjóðlegum hagskýrslustaðli um opinber fjármál, GFS, sem fjárlög
    byggjast á, var neikvæð um 66 milljarða. Í fjárlögum var gert ráð fyrir
    62,6 milljarða halla og var niðurstaðan því 3,4 milljörðum lakari en
    fjárlög gerðu ráð fyrir. Hún var jafnframt 31 milljarði lakari en síðasta
    áætlun ársins.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Heildartekjur A1-hluta á GFS-grunni námu 1.489 milljörðum. Þær
    voru rúmum 68 milljörðum umfram fjárlög en rúmum 4 milljörðum undir
    síðustu áætlun ársins. Frumjöfnuður var jákvæður um 50,5 milljarða en
    vaxtajöfnuður neikvæður um 116,5 milljarða.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Samkvæmt efnahagsreikningi A1-hluta námu eignir rúmum 3.389
    milljörðum í árslok og jukust um 144 milljarða milli ára. Skuldir námu
    rúmum 3.584 milljörðum í árslok og hækkuðu um rúma 450 milljarða milli
    ára. Lántökur hækkuðu um rétt rúmlega 280 milljarða og
    lífeyrisskuldbindingar um tæplega 165 milljarða. Þar af má rekja tæpa 147
    milljarða til leiðréttingar á upphafsstöðu 1. janúar 2025.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Eigið fé A1-hluta var neikvætt um 195 milljarða í árslok,
    samanborið við jákvætt eigið fé um 111 milljarða árið áður. Breytingin
    milli ára skýrist, auk afkomu ársins, að verulegu leyti af leiðréttingum á
    upphafsstöðu vegna lífeyrisskuldbindinga og eignfærðs virðisaukaskatts í
    fjárfestingum. Endurmat samgöngumannvirkja hafði hins vegar jákvæð áhrif á
    eigið fé. Neikvætt eigið fé endurspeglar því ekki afkomu ársins 2025 eina
    og sér.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Handbært fé A1-hluta nam 419 milljörðum í árslok, samanborið við
    360 milljarða í ársbyrjun.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Að svo mæltu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til
    fjárlaganefndar að lokinni þessari umræðu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>