<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T14:13:49" skst="IIsak" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 14:15:13 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T14:13:49">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="74">
      <ns:málsheiti>staðfesting ríkisreiknings 2025</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferðina á
    þessum ríkisreikningi. Það er ekki mjög upplífgandi að eigið fé er að
    snúast úr jákvæðu í neikvætt í þessum reikningi og hallinn er hærri en
    áætlanir gerðu ráð fyrir. Það er nú þannig þegar við erum að gera
    áætlanir, bæði varðandi gjaldahliðina og tekjuhliðina, að stundum er viss
    óvissa í kringum það. En óvissan má samt sem áður ekki vera of mikil.
    Þegar hún er orðin of mikil og við sjáum tölur í áætlunum og síðan hvernig
    niðurstaðan verður — þegar veruleg skekkja er þarna á milli vekur það
    athygli. Það sem vakti athygli mína í þessum ríkisreikningi er hversu stór
    hluti fjárfestingarheimilda ríkisins virðist ekki hafa nýst á árinu 2025.
    Við erum ekki að tala um einhver hundruð milljóna, við erum að tala um
    tugi milljarða sem ekki voru nýttir. Þetta á m.a. við um mikilvæg svið
    eins og á sviði heilbrigðismála og samgangna og nú veit ég að nýi
    Landspítalinn gæti verið stór hluti af þessu. <ns:bjalla/> Samt sem áður,
    ef við horfum á samgöngur og annað, þá virðist skorta þar vel á.
    <ns:bjalla/> Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann hafi einhver
    svör við þessu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>