<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-16T14:15:18" skst="DMK" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 14:16:21 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T14:15:18">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="74">
      <ns:málsheiti>staðfesting ríkisreiknings 2025</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir spurninguna. Ég
    deili með henni áhyggjum af því að fjárfestingarheimildir hafi ekki gengið
    út. Þetta er að vísu ekki nýtt fyrirbæri og hefur verið vaxandi vandamál
    um allnokkurt skeið. Þessar heimildir hafa verið að safnast upp. Fyrir því
    eru ýmsar skýringar. Þeirra er ekki að leita, að sjálfsögðu, í skorti á
    fjármagni heldur í því að verkefnin ganga ekki eins hratt og áætlanir
    gerðu ráð fyrir. Að einhverju leyti má rekja það til eðlilegra atriða sem
    hafa með tímaáætlanir að gera sem af ýmsum ástæðum hafa raskast, en að
    einhverju leyti má rekja það til kæruferla og tafa sem ég held að sé full
    ástæða til að hafa áhyggjur af.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég hef áður gert það að umtalsefni í þessu ræðupúlti að það eru
    jafn mörg kærumál hjá kærunefnd útboðsmála í Danmörku og hjá íslensku
    kærunefndinni þrátt fyrir að danska hagkerfið sé margfalt stærra en
    íslenska hagkerfið og af því er full ástæða til að hafa áhyggjur.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>