<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T14:16:29" skst="IIsak" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 14:17:20 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T14:16:29">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="74">
      <ns:málsheiti>staðfesting ríkisreiknings 2025</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra, fyrir því að þetta skiptir
    ekki eingöngu máli gagnvart einhverjum einstökum framkvæmdum heldur einnig
    hvernig við metum hversu vel tekst til við framkvæmd þeirra fjárlaga sem
    við erum að samþykkja ár hvert á Alþingi. Það er eitt að ákveða fjármuni
    til fjárfestinga í fjárlögum en það er annað að koma þeim í framkvæmd og
    líkt og hæstv. ráðherra segir hér hefur verið erfitt að koma þessu til
    framkvæmda, m.a. vegna kærumála. En mig langar að spyrja hæstv. ráðherra:
    Telur hann ástæðu í ljósi þessarar þróunar, sem hann fór líka ágætlega
    yfir í sínu máli hér, og tilefni til að skoða þetta eitthvað frekar aftur
    í tímann og sjá hvort það séu einhver tengsl þarna á milli og hvort
    vandinn liggi líka hjá m.a. Framkvæmdasýslunni?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>