<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-16T14:17:25" skst="DMK" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 14:18:14 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T14:17:25">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="74">
      <ns:málsheiti>staðfesting ríkisreiknings 2025</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir aðra ljómandi
    góða spurningu og ég tel fulla ástæðu til þess og hef raunar lagt mikla
    áherslu á þetta mál. Þess er að vænta að fjármálaráðuneytið leggi fram
    frumvarp á þessu þingi um heildarendurskoðun á fjárfestingum hins
    opinbera. Það er víða pottur brotinn en þó kannski sérstaklega í
    áætlanagerðinni sjálfri sem hefur ekki verið eins vönduð á Íslandi og víða
    í nágrannalöndunum. Við samningu þessa frumvarps, sem verður auðvitað lagt
    fram og við hv. þingmaður munum geta rætt ítarlega þegar þar að kemur,
    hefur verið mjög horft til reynslu Norðmanna sem gerðu nokkra bragarbót
    einmitt í þessu efni fyrir u.þ.b. 20 árum síðan og það er hægt að byggja á
    þeirri reynslu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>