<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T14:18:21" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 14:19:23 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T14:18:21">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="74">
      <ns:málsheiti>staðfesting ríkisreiknings 2025</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég og hæstv. fjármálaráðherra vorum um margt sammála
    í byrjun þessa kjörtímabils en eftir því sem hefur liðið á tímabilið
    virðumst við minna og minna sammála. Við erum þó sammála um að það má
    gagnrýna fyrri ríkisstjórn fyrir margt og ekki var ég ánægð með
    útgjaldagleði hennar þrátt fyrir að hluti af því eigi eðlilegar skýringar.
    Mig langar þess vegna að spyrja, af því að í þessu hér fyrir árið 2025 fór
    þessi ríkisstjórn langt fram úr því sem áætlað var þrátt fyrir auknar
    tekjur og hún fór líka fram úr 2026: Hvað skýrir þessa útgjaldagleði og er
    einhver von til þess að það verði ekki sama núna á næsta ári miðað við
    þennan reikning?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>