<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-16T14:21:55" skst="DMK" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 14:22:51 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T14:21:55">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="74">
      <ns:málsheiti>staðfesting ríkisreiknings 2025</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur
    fyrir síðari spurninguna. Þessar breytingar sem samþykktar voru á síðasta
    þingi um að bætur fylgi vísitölu mynda ekki á sama hátt óútfylltan
    reikning eins og þann sem ég var að ræða um. Þar liggur þó einingaverðið
    alveg fyrir. Það er fyrst og fremst þegar magnið eða magntölurnar eru
    óljósar. Það er ljóst séu ríkisreikningar bornir saman við fjárlög aftur í
    tímann, síðastliðinn áratug a.m.k., að það er töluvert verk að vinna í að
    bæta eftirfylgni með fjárlögum. Ég tek undir það með hv. þingmanni og mun
    leggja mig fram um að vinna með þinginu í því sem og að afla þinginu
    þeirra upplýsinga sem þingið biður um.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>