<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-16T14:24:29" skst="DMK" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 14:25:39 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T14:24:29">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="74">
      <ns:málsheiti>staðfesting ríkisreiknings 2025</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir
    spurninguna. Varðandi sundurliðun á útgjöldum til varnarmála er það
    spurning sem þarf að bera undir hæstv. utanríkisráðherra. Það er að beiðni
    utanríkisráðuneytisins sem þessar upplýsingar hafa ekki verið gefnar út og
    það er rétt að hún svari því.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi söluhagnaðinn af Íslandsbankasölunni þá veit hv.
    þingmaður að ástæðan fyrir því að þarna er bókfært tap er að það er munur
    á bókfærðu verði félagsins í bókum ríkisins fyrir söluna og söluandvirðinu
    þegar það lá fyrir. Sú aðferðafræði sem beitt var opnaði fyrir þann
    möguleika að almenningur á Íslandi gæti keypt bankann og þá lá fyrir strax
    í upphafi hvert verðið yrði. En ég vil nota þetta tækifæri til að segja í
    þessari pontu, þó að margir hafi hér gagnrýnt fyrri stjórnvöld fyrir sölu
    á hlut ríkisins í Íslandsbanka, hvað varðar söluandvirðið í fyrstu og
    annarri umferð var ekkert yfir því að kvarta.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>