<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T14:25:51" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 14:27:06 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T14:25:51">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="74">
      <ns:málsheiti>staðfesting ríkisreiknings 2025</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir skýr og góð
    svör. Ég held að það sé mikilvægt að formaður og varaformaður Viðreisnar
    ræði þetta mál, þessa 43 milljarða, því að það kemur alltaf nýtt svar í
    hvert skipti sem maður spyr. Hæstv. utanríkisráðherra kannast ekkert við
    það hér í þinginu að halda aftur af þessum upplýsingum en sömuleiðis
    liggur náttúrlega fyrir að við fengum meira eins og í fyrstu tveimur
    útboðum Íslandsbanka. En látum það liggja á milli hluta.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég ætla að spyrja að tvennu. Það er náttúrlega stór viðsnúningur
    þarna eða stórt uppgjör varðandi Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Við
    ræddum það mjög lítið í fjáraukalögum þegar þetta kom fram og ég spyr
    hæstv. ráðherra hvort það standi nokkuð á ráðuneytinu að veita tilheyrandi
    upplýsingar hvað það varðar. Síðan spyr ég líka að því, og þar er ég
    sammála hæstv. ráðherra sem talar mikið um að vanda til verka: Getum við
    ekki treyst því að þau fjáraukalög sem koma í framtíðinni fari eftir lögum
    um fjáraukann, <ns:bjalla/> það verði bara ófyrirséð útgjöld þar inni en
    önnur útgjöld verði ekki?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>