<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T14:28:36" skst="NTF" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 14:29:59 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T14:28:36">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="74">
      <ns:málsheiti>staðfesting ríkisreiknings 2025</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Það er svo sem búið að koma nokkuð inn á það sem ég
    ætlaði að spyrja út í en uppgjörið á 2025 er svolítið mikilvægt og
    staðfesting ríkisreiknings felur fyrst og fremst í sér formlega
    staðfestingu. Ríkisreikningurinn á að vera mikilvægt eftirlitstæki
    Alþingis og við eigum að læra af honum, kalla eftir skýringum og tryggja
    að samþykktar fjárheimildir skili raunverulegri þjónustu og uppbyggingu um
    allt land. Það sem er kannski í þessu máli að fjárlögin sem voru samþykkt
    í nóvember 2024 fyrir árið 2025, ef við myndum hreinsa út varðandi
    lífeyrisskuldbindingarnar, útreikningana þar, fjáraukana sem komu, fjórir,
    fimm yfir árið, hefðu þessi fjárlög ekki bara farið langt með að vera í
    kringum núllið ef allt væri tekið með? Við sjáum að
    lífeyrisskuldbindingarnar eru um 90 milljarðar og heildartalan hækkar mjög
    mikið við það og svo eru fleiri þættir þarna á bak við. En ef við tökum
    allt saman — það er kannski það sem maður hefði haft áhuga á að sjá miðað
    við framlögð fjárlög og síðan ríkisreikninginn og það er að einhverju
    leyti reynt að taka það saman. <ns:bjalla/> En er það ekki þannig að ef
    við hefðum tekið út lífeyrisskuldbindingarnar og fjáraukana fimm hefði
    þetta verið nálægt núllinu?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>