<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-16T14:30:04" skst="DMK" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 14:31:09 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T14:30:04">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="74">
      <ns:málsheiti>staðfesting ríkisreiknings 2025</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir
    spurninguna og ég tek undir mikilvægi ríkisreiknings og skilnings almennt
    á ríkisreikningi. Nú eru auðvitað tölurnar sem þarna koma fram, eins og
    kemur óbeint fram í máli hv. þingmanns, ekki að fullu sambærilegar við
    fjárlög og fjármálaáætlun vegna þess að fjárlög og fjármálaáætlun eru
    unnin samkvæmt GFS-staðli en ríkisreikningur samkvæmt IPSAS. Hv. þingmaður
    nefndi 90 milljarða en ég hygg að hið rétta sé 140 milljarðar, 90
    milljarðar eru mismunurinn. En það er alveg ljóst að á árinu 2025 var
    stigið mjög mikilvægt skref í áttina að því að ná jafnvægi í rekstri
    ríkisins. Ég held að það sé hins vegar óvarlegt að gera ráð fyrir því að
    það megi horfa fram hjá fjárauka vegna þess að í flestum tilfellum er í
    fjárauka kveðið á um útgjöld sem voru ófyrirséð og eru óumflýjanleg. En
    niðurstaðan er tvímælalaust í rétta átt.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>