<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T14:31:21" skst="NTF" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 14:32:35 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T14:31:21">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="74">
      <ns:málsheiti>staðfesting ríkisreiknings 2025</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Það kemur einmitt fram í þessu máli að gengið var á
    varasjóðinn vegna B-deildar LSR lífeyrissjóðsins til að mæta slæmri
    tryggingafræðilegri stöðu, en það hefur ekki komið fram opinberlega hvort
    skilyrði til þess hafi verið uppfyllt. Ég man ekki eftir að þetta hafi
    verið tekið sérstaklega fyrir í fjárlaganefnd. Væri ekki eðlilegt út frá
    eftirlitshlutverki þingsins og fjárlaganefndar að þetta væri tekið fyrir
    þar?</ns:mgr>

    <!--LS segir hann. Á hann ekki við LSR? Má hlusta á byrjunina aftur-->

    <ns:mgr>Síðan vildi ég taka sérstaklega undir það sem kemur fram hjá
    hæstv. ráðherra, hann tekur undir að aðstoða þingið við eftirlitshlutverk
    sitt. Á fjárlaganefndarfundi í morgun þá tók ég þetta svolítið upp og
    maður hefur miklar áhyggjur af fjárfestingarheimildunum sem eru ónýttar.
    Þetta virðist vera lenska yfir mjög langt tímabil og ég óskaði eftir
    minnisblaði frá ráðuneytinu til 10 ára um hvernig þessum málum hefur verið
    háttað. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt til að auka gegnsæi í
    tengslum við fjárlagavinnuna hvernig farið er með þessar heimildir. Það
    virðist vera að þetta sé ekki alveg í nægilega góðum farvegi hjá okkur.
    Tekur hæstv. ráðherra undir það?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>