<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-16T14:32:40" skst="DMK" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 14:34:07 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T14:32:40">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="74">
      <ns:málsheiti>staðfesting ríkisreiknings 2025</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir
    spurninguna. Hún heggur raunar í svipaðan knérunn og fyrirspurn hv. þm.
    Ingibjargar Isaksen og ég vil nota tækifærið og endurtaka mitt svar. Ég
    deili 100% áhyggjum hv. þingmanns af því að fjárfestingarheimildir gangi
    ekki út. Það er eitthvað að áætlanagerð ef svona mikil frávik, sem hlaupa
    á tugum milljarða, verða til og þetta skapar auðvitað ákveðna opna stöðu
    sem gerir t.d. fjármögnun ríkissjóðs miklu erfiðari af því að það verður
    þarna ákveðinn ófyrirsjáanleiki í fjármögnunarþörf sem er mjög erfitt að
    eiga við. Einmitt þess vegna hefur það verið eitt af áherslumálum mínum
    sem fjármálaráðherra að leggja fram frumvarp til laga um fjárfestingar
    ríkisins, heildarendurskoðun á því, og, eins og ég vék að í máli mínu fyrr
    í þessari umræðu, á grundvelli fyrirkomulags sem Norðmenn hafa komið sér
    upp. Það hefur reynst vel núna til 20 ára hjá þeim, þeir hafa útvíkkað það
    aðeins. En við vitum líka þegar við horfum til ákveðinna ríkisaðila sem
    hafa staðið sig betur í sinni áætlanagerð, og ég vil í því samhengi nefna
    Landsvirkjun, að það er hægt að gera miklu betur en ríkið hefur gert
    hingað til og það er svo sannarlega minn metnaður að stuðla að
    því.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>