<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T14:34:22" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 14:49:01 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T14:34:22">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="74">
      <ns:málsheiti>staðfesting ríkisreiknings 2025</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Við
    erum sammála um það, ég og hæstv. ráðherra, að það er mjög mikilvægt að
    þingið fari gaumgæfilega yfir opinber fjármál og ríkisreikningurinn er
    ekki þar undanskilinn. Það er af mörgu að taka og ég held, virðulegi
    forseti, að til þess að við gerum hlutina eins vel og mögulegt er í nútíð
    og framtíð þá sé þess virði að skoða hlutina vel og ég vonast til þess að
    fjármálaráðuneytið veiti okkur þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til
    þess að hv. þingmenn geti unnið vinnuna sína.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Eitt af því sem við höfum oft rætt er sala eigna. Það er áhugavert
    hvernig sú umræða hefur verið. Hún hefur kannski ekki alltaf verið út frá
    efnisatriðum heldur kannski einhverju öðru en eins og ég nefndi í minni
    fyrirspurn í andsvari til hæstv. ráðherra þá er mikill munur á
    söluandvirðinu í þessum þremur útboðum. Það liggur alveg fyrir að síðasta
    útboðið er með mun meiri afslátt frá síðasta markaðsaðgangi en við sáum
    árið 2022. Munurinn er um 6,7 milljarðar miðað við dagslokagengið og 8,9
    milljarðar miðað við gengið í útboðinu 2022. Ég held að það sé einn þáttur
    sem við þurfum að líta til því alla vega er mín skoðun sú að það skipti
    máli að við höldum áfram að selja eignir. Ríkið á of mikið af eignum. Það
    hefur marga ókosti í för með sér og þá er ég að vísu ekki bara að tala um
    banka. Það skiptir máli þegar kemur að þessum ríkiseignum, þegar við
    seljum þær, að við vöndum okkur eins mikið og mögulegt er og lærum þá af
    reynslunni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Sama kemur fram þegar kemur að lífeyrissjóðamálunum sem ég held að
    skipti mjög miklu máli að við ræðum og skoðum mjög vel. Við þurfum að
    skoða hver raunveruleg staða er. Eitt er B-deildin sem er eins og hæstv.
    ráðherra vísaði til. Þeirri afgreiðslu sem var á sínum tíma verður
    auðvitað ekki breytt en samt er þetta nú nokkuð fljótandi. En þetta er
    meira en B-deildin. B-deildin er nú lítill hluti af þessu. Þarna erum við
    að tala um gríðarlegar fjárhæðir og mjög mikla hagsmuni hjá sjóðfélögum og
    í rauninni skattgreiðendum. Það er mikilvægt að við förum dýpra í það en
    við gerðum þegar við afgreiddum þetta í fjáraukanum. Þetta kom á elleftu
    stundu og var klárað mjög hratt og svo skiptir auðvitað líka máli hvernig
    þessar skuldbindingar eru bókfærðar. Manni sýnist sem svo að þetta komi
    svona í slumpum sem gefur þá kannski ekki rétta mynd af afkomu ríkisins ef
    þetta er gert endrum og sinnum í staðinn fyrir að þetta jafnist þá yfir
    árin.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er rétt sem kom fram hjá hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni
    að manni sýnist sem svo að ef menn hefðu sleppt þessum fjáraukalögum, sem
    voru á árinu 2025 fern talsins, að miðað við þær upplýsingar sem við
    fengum inni í hv. fjárlaganefnd, og hefur svo sem verið staðfest, þá voru
    tekjur ársins mun meiri en fjárlagafrumvarpið gerði ráð fyrir. Það er gott
    og það virðist vera að ef menn hefðu ekki farið í þessa fjárauka þá hefði
    afkoman verið nær núllinu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Að mínu áliti hefði verið skynsamlegra fyrir ríkisstjórnina sem
    tók við í desember 2024 að hefja strax að fara í erfiða hluti sem þarf að
    gera þegar kemur að rekstri ríkisins því að við sjáum að eftir þennan tíma
    erum við enn þá á þeim stað að t.d. framkvæmd fjárlaga er verulega
    ábótavant. Ég ætla ekki að halda því fram að þetta sé eina ríkisstjórnin
    sem hafi lent í slíku, það væri ósanngjarnt. En það breytir engu,
    verkefnið er þarna og það voru stór fyrirheit um breytingar hvað þetta
    varðaði. En við erum alla vega ekki enn þá að ná efndunum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég lýsi því yfir að við í Sjálfstæðisflokknum erum alveg tilbúin í
    alla þessa vinnu þegar kemur að því að vanda til verka í opinberum
    fjármálum og það hefur valdið gríðarlega miklum vonbrigðum hvernig
    ríkisstjórnin hefur gengið fram því — eins og ég hef margoft nefnt og mun
    ekki þreytast á að nefna, vegna þess að það skiptir máli að það séu allir
    meðvitaðir um það — að hér var breytt lögum um opinber fjármál. Það var um
    það þverpólitísk sátt. Það var gríðarlega mikil vinna unnin í áratug til
    að breyta þessum lögum, fjölmargir aðilar sem komu að því, bæði innlendir
    og erlendir, færustu sérfræðingar, og það er grafalvarlegt ef það er ekki
    farið eftir þessum lögum. Því miður gerði ríkisstjórnin það ekki. Í stað
    þess að leggja fram fjármálastefnu, sem er mikilvægt, og ræða hana,
    afgreiða hana og samþykkja hana og byggja síðan fjármálaáætlun á þessari
    fjármálastefnu þá var það ekki gert. Það þýddi að við vorum að fara
    áratugi aftur í tímann þegar kom að vinnu við opinber fjármál. Ég nefndi
    sérstaklega fjáraukalögin og hæstv. ráðherra sagði skýrt að það yrði farið
    eftir lögum þegar kæmi að því að það yrði alveg — það eiga bara að vera
    þar útgjöld sem eru óvænt og ófyrirséð. Ástæðan fyrir því að menn fóru
    m.a. í að breyta lögum um opinber fjármál var til að losa okkur undan
    fjáraukalögum. Þau áttu fyrst og fremst að vera ef það þyrfti að millifæra
    á milli málefnasviða eða milli ráðuneyta og síðan auðvitað að mæta því ef
    eitthvað kæmi upp sem væri óvænt og ófyrirséð. Augljós dæmi eru auðvitað
    hlutir eins og náttúruhamfarir og faraldrar og annað slíkt. En áður en lög
    um opinber fjármál tóku gildi var verið að nota þetta ansi frjálslega. Mér
    sýnist sem svo miðað við þessi fjáraukalög sem komu 2025 að við séum að
    stíga skref til baka hvað varðar það hvernig við afgreiðum fjáraukalög.
    Það er vont og það er alvarlegt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Síðan verður að koma á hreint, virðulegur forseti, með
    sundurgreiningu á þessum 43 milljörðum. Að öllu óbreyttu munum við núna í
    október kaupa köku til að halda upp á að það er eitt ár síðan við báðum um
    þessa sundurgreiningu. Nú er það þannig, virðulegi forseti, þó að það sé
    ekki aðalatriði máls, að sá sem hér stendur þarf ekki að borða fleiri
    kökur, hann þarf aðeins að fara að minnka það. Það er aukaatriði í málinu.
    Aðalatriðið er að hér hafa stjórnvöld lýst því yfir að það hafi verið
    stóraukið. Við erum að tala um að árið 2024, ef ég man þetta rétt, voru
    þetta 7 eða 9 milljarðar kr. sem fóru í varnarmál og varnartengd verkefni.
    Fyrsta talan sem við fengum að sjá var 27 milljarðar. Þetta er komið upp í
    43 milljarða sem er búið að segja þjóðinni frá að sé í varnartengd
    verkefni. Gott og vel, ég veit að það eru breyttar reikniforsendur og það
    eru nýir staðlar, bara ekkert að því, en það er með slíkum ólíkindum að
    við fáum ekki þessar upplýsingar. Við höfum sent bréf til virðulegs
    forseta út af þessu máli. Við gerðum það, allir hv. þingmenn í minni
    hlutanum í fjárlaganefndinni. Það var það síðasta sem við gerðum síðasta
    vor. Við höfum ekki fengið nein viðbrögð við því bréfi, ekki fengið nein
    svör. Ég spurði hæstv. utanríkisráðherra fyrir nokkrum dögum um þetta í
    umræðum um fjárlögin. Hún vísaði á fjármálaráðherra og svo kemur
    fjármálaráðherra og vísar á utanríkisráðherra.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Hvernig eigum við að vinna vinnuna okkar ef
    við fáum ekki að vita um sundurgreiningu á 43 milljörðum kr.? Það er orðið
    sérstakt rannsóknarefni af hverju í ósköpunum við erum að halda þessum
    upplýsingum frá þingi. Af hverju er verið að halda þessum upplýsingum frá
    þinginu? Það getur enginn haldið því fram að þessar óskir hafi ekki komið
    skýrt fram. Ég held að ég geti fullyrt, í það minnsta lungann af þessum
    fundum, að við höfum tekið þetta upp á hverjum einasta fundi hv.
    fjárlaganefndar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég hélt að við fengjum þetta strax. Það er
    okkar réttur og það snýst ekki um einhverja persónulega hagsmuni hv.
    þingmanna. Það er til þess að hv. þingmenn geti unnið vinnuna sína. Það er
    til lítils að segja — og ég er alveg sammála, ég held að hæstv. ráðherra
    sé algjörlega einlægur í því að það sé mikilvægt að þingið komi betur að
    málum þegar kemur að fjárlögunum. Hann hefur nefnt það varðandi
    eftirfylgnina, sammála því öllu. En hvernig eigum við að fylgjast með ef
    við fáum ekki upplýsingar? Þetta eru ekki 43 milljónir, þetta eru ekki
    430.000, þetta eru ekki 4,3 milljónir. Þetta eru 43 milljarðar. Spurningin
    er ekki flókin, hún hefur bara verið að við fáum sundurgreint hvernig
    þessir 43 milljarðar skiptast. Núna, virðulegi forseti, eru tvær vikur í
    það að við verðum búin að bíða í heilt ár eftir þessum upplýsingum. Hæstv.
    ráðherra var bara skýr, þ.e. hæstv. fjármálaráðherra var skýr, af því að
    það var hæstv. utanríkisráðherra sem vildi ekki að fjárlaganefndin fengi
    þessar upplýsingar. Hæstv. utanríkisráðherra kannast ekkert við það. Ég
    get ekki, virðulegi forseti, farið í einhverja sáttamiðlun á milli
    formanns og varaformanns Viðreisnar. Það er ekki hlutverk okkar þingmanna.
    Það var mjög skrýtið af hverju við fengum þessar upplýsingar ekki strax.
    Það er enn þá skrýtnara að það sé að verða komið heilt ár síðan við báðum
    um þessar upplýsingar. Síðan er náttúrlega mjög skrýtið að ráðherrar
    ríkisstjórnarinnar bendi hvor á annan þegar kemur að þessum
    upplýsingum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vonast nú til þess að úr þessu verði bætt
    og vek athygli hv. stjórnarþingmanna á því að ef framkvæmdarvaldið kemst
    upp með það og það verði látið líðast að framkvæmdarvaldið veiti ekki
    upplýsingar sem því ber að veita til þingnefnda og þingmanna þá er
    stjórnarmeirihlutinn að búa til fordæmi sem ég veit ekki hvert gæti
    þróast. Ég hvet hv. þingmenn því að í fyrsta lagi skiptir öllu máli fyrir
    þing og þjóð að hv. þingmenn fái upplýsingar sem þeim ber að fá til að
    vinna vinnuna sína en í ofanálag þá vil ég vekja athygli hv. þingmanna á
    því að það er ekki sjálfgefið að þessi ríkisstjórn lifi að eilífu og þeir
    gætu verið í þeirri stöðu að þeir myndu vilja fá upplýsingar til þess að
    sinna sínu hlutverki og eru núna að skapa það fordæmi að
    framtíðarríkisstjórnir geti bara bent á þetta og sagt: Heyrðu, þið voruð í
    ríkisstjórn sem bara virti þetta að vettugi, bara risamál, bara ákváðuð að
    láta ekki þingmenn vita neitt um þau þrátt fyrir að þeir væru að spyrja á
    hverjum einasta fundi. Það er til umhugsunar fyrir stjórnarþingmenn því að
    ég er búinn, og við í minni hlutanum, að reyna allt sem við getum til að
    fá þessar upplýsingar. Við erum auðvitað ekki hættir. En mér er algjörlega
    fyrirmunað að skilja af hverju í ósköpunum þessar upplýsingar fást ekki.
    Ef við eigum að vinna vinnuna okkar, sem við gjarnan viljum gera og
    leggjum okkur alla fram til að vinna, þá verðum við að fá þessar og aðrar
    upplýsingar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>