<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-16T14:49:12" skst="DMK" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 14:50:35 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T14:49:12">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="74">
      <ns:málsheiti>staðfesting ríkisreiknings 2025</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hans ræðu.
    Mig langar til þess að spyrja um lög um opinber fjármál sem hv. þingmaður
    gerir oft að umtalsefni og ég er hjartanlega sammála honum um að hafi
    verið mikið framfaraskref þegar það var stigið á sínum tíma. Við höfum hér
    ítrekað rætt um þær framúrkeyrslur á útgjöldum sem hafa einkennt rekstur
    íslenska ríkisins mjög lengi og mikilvægi þess að eftirfylgni í framkvæmd
    fjárlaga sé bætt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Nú kveða lög um opinber fjármál á um að ríkið komi sér upp innri
    endurskoðun. Það hefur aldrei verið framkvæmt og ég myndi gjarnan vilja
    heyra álit hv. þingmanns á þeirri hugmynd vegna þess að það er nákvæmlega
    eitt af hlutverkum innri endurskoðenda að fara yfir brotalamir sem eru í
    framkvæmd. Það væri í fyrsta lagi áhugavert að heyra hvers vegna þetta var
    ekki framkvæmt og í öðru lagi hver viðhorf hv. þingmanns eru til þess að
    slíku embætti yrði komið upp.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>