<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T14:50:42" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 14:53:05 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T14:50:42">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="74">
      <ns:málsheiti>staðfesting ríkisreiknings 202</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir prýðilegt
    andsvar. Hann spyr um einn þáttinn þegar kemur að lögum um opinber
    fjármál. Nú skal það sagt að frá því að ég kom mest að þessu sem
    varaformaður fjárlaganefndar hef ég sinnt öðrum embættum. Það skal
    viðurkennast að ég var meira að hugsa um rekstur míns ráðuneytis eða minna
    ráðuneyta en nákvæmlega þennan þátt. Ég er því svolítið að taka þráðinn
    upp aftur og meðal annars að kanna þessa hluti sem hæstv. ráðherra er að
    spyrja um. Eins og ég skil það eru allir sammála um að þetta hafi verið
    mikil bragarbót. Þetta var mikil breyting til góðs.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Einhverra hluta vegna erum við ekki búin að framfylgja öllu því
    sem þarna er og þá erum við núna að tala um framkvæmd fjárlagavalds.
    Hæstv. ráðherra vísar í innri endurskoðun en er sömuleiðis, ef ég skil
    málið rétt, með uppgjör innan ársins sem hefur alla vega ekki verið
    framkvæmt eins og ætti að gera og jafnvel fleiri þætti. Ég kann ekki
    svarið við því af hverju það hefur ekki verið gert en ég held að það
    skipti máli að við köllum eftir því. Ef niðurstaðan er sú að það séu
    málefnaleg rök fyrir því geri ég væntanlega ráð fyrir því, ég bara þekki
    það ekki, að þegar kemur að innri endurskoðun hljóti menn að huga að
    einhverju samspili við Ríkisendurskoðun. Það er það fyrsta sem mér dettur
    í hug en ég bara kann ekki svarið við því.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í mínum huga er það mjög einfalt að ég held að við ættum að fara
    yfir hverju breytt lög um opinber fjármál hafa skilað og fara þá
    sérstaklega yfir af hverju ekki hefur allt verið framkvæmt sem þar er
    inni. <ns:bjalla/> Menn vissu að þeir þyrftu að gera þetta í einhverjum
    áföngum. En það var 2015, ef ég man rétt, sem þetta var samþykkt, þetta
    eru tíu ár og við eigum núna að fara yfir það og meta hvort við eigum að
    taka eitthvað út úr lögunum eða bæta einhverju inn. Það er alla vega mitt
    mat að eftir áratug eigum við að fara yfir framkvæmdina og meta kosti
    hennar og galla.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>