<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fjmrh." frhr="0" id="r2026-09-16T14:53:11" skst="DMK" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 14:54:38 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T14:53:11">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="74">
      <ns:málsheiti>staðfesting ríkisreiknings 2025</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir svarið. Nú
    er auðvitað hlutverk innri endurskoðunar og ytri endurskoðunar nokkuð
    ólíkt og ég held að það sé mikilvægt að tekin verði umræða á vettvangi
    fjárlaganefndar um innri endurskoðun. Innri endurskoðun held ég að myndi
    veita okkur tækifæri til ákveðinnar gagnrýnnar endurskoðunar á
    aðferðafræði sem beitt er hjá hinu opinbera.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En mig langaði í síðari spurningunni að spyrja aðeins um uppfærslu
    lífeyrisskuldbindinga. Það er rétt sem hv. þingmaður bendir á að þetta
    kemur í slumpum og ástæðan er sú að þetta er einungis uppfært einu sinni á
    ári. Raunar eru ekki forsendur til þess að uppfæra þetta oftar en það er
    þó einn af kostum IPSAS-staðalsins, sem nú er að fullu innleiddur í fyrsta
    skipti við framlagningu ríkisreiknings, að hann tekur einmitt tillit til
    þessara skuldbindinga, þ.e. skuldbindinga sem munu falla en verða ekki
    gjaldfærðar fyrr en einhvern tímann í framtíðinni. Ég velti aðeins fyrir
    mér á hvaða grunni hv. þingmaður byggir vangaveltur sínar um að
    lífeyrisskuldbindingarnar yrðu uppfærðar oftar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>