<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-16T14:54:45" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-16 14:57:02 -->

  <ns:umsýsla fundur="7" lgþ="158" tími="2026-09-16T14:54:45">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="74">
      <ns:málsheiti>staðfesting ríkisreiknings 2025</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það sem ég er að sækjast eftir og mun spyrjast
    fyrir um í hv. fjárlaganefnd, þegar kemur að
    lífeyrissjóðsskuldbindingunum, er að mér finnst ekki alveg ljóst og það
    hafa ekki komið fram nákvæmari útfærslur á því þegar kemur að
    lífeyrissjóðsskuldbindingunum miðað við það samkomulag sem var gert milli
    fjármálaráðuneytisins og LSR. Og í stað þess að vera með stórar
    yfirlýsingar var ég að kalla eftir því og mun kalla eftir því að við fáum
    allar upplýsingar hvað það varðar vegna þess að miðað við þær upplýsingar
    sem ég hef bestar byggjast þessir hlutir á samkomulagi sem var gert á
    milli ráðuneytisins og LSR. Og ákveðnar forsendur þurfa að verða
    uppfylltar til þess að komi til uppgjörs og greiðslna. Ég spurði hæstv.
    ráðherra sérstaklega hvort það myndi nokkuð standa á að fá upplýsingarnar
    vegna þess að ég er ekki með þær allar. Þess vegna orðaði ég hlutina með
    þessum hætti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þegar kemur hins vegar að þessum málum er mjög mikið af
    athugasemdum sem koma frá Ríkisendurskoðun á hverju ári. Þá er ég ekki að
    tala um lífeyrisskuldbindingarnar heldur almennt um endurskoðunina. Við
    höfum nú svona rætt það í fjárlaganefnd að þetta sé svolítið endurtekið
    efni sem er auðvitað ekki gott þó að hlutirnir þróist í rétta átt og maður
    verður auðvitað að hafa skilning á því að það er ekki hægt að breyta öllu
    á einni nóttu. En ég bara segi að við erum miklu meira en tilbúin að ræða
    þessi mál, bæði í hv. fjárlaganefnd og í þinginu. Þó að við séum ósammála
    í stjórnmálum held ég að við ættum að geta náð sátt um <ns:bjalla/> að
    vera sammála um að umgjörðin eigi að vera eins góð og mögulegt er og ég
    lít svo á að þessi umræða okkar hér hafi gengið út á það.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>